Frestun á fundum Alþingis.
Guðjón A. Kristjánsson (Fl):
Hæstv. forseti. Hér er hafin ágæt umræða um starfshætti Alþingis. Það vill svo til að sá sem hér stendur vék að þessum störfum í eldhúsdeginum í gærkvöldi þar sem ég dró það fram að 85 frumvörp annaðhvort biðu í nefndum eða hefðu ekki komist til 1. umr. og að 126 þingsályktunartillögur væru enn þá óafgreiddar hjá þinginu, biðu annaðhvort seinni umræðu eða hefðu ekki komist í þá fyrri.
Allt eru þetta þingmannamál, hæstv. forseti.
Það er algjörlega rétt sem hér hefur verið dregið fram að það er nauðsynlegt að við tökum umræðu um það hvernig þinghaldi er háttað og hvernig þingtímanum verður best varið. Ég hef áður orðað það að þinghaldinu mætti breyta og gera það markvissara til að ná meiri árangri í þingstörfunum. Ég hef litið svo á, hæstv. forseti, að þegar þingmenn hafa orðað hugsanir sínar í þessum ræðustól og lýst því yfir að þeir tali fyrir hönd þingflokka sinna — síðan hafa auðvitað verið flutt mál sem hér hefur verið vikið að um starfstíma og starfstilhögun þingsins — sé það m.a. orðið verkefni forseta þingsins og forsætisnefndar að taka þetta til umræðu. Að sjálfsögðu getur forseti þingsins beitt sér fyrir því að málið verði rætt við formenn þingflokka.
Ég hef skilið það svo að eðlilegt væri að forseti þingsins tæki til umræðu þann áhuga sem þingmenn hafa lýst á breytingum á störfum þingsins með það að markmiði að breyta þingstörfunum. Ég hef lýst því sem minni skoðun að hér ætti þing að hefjast 15. september ár hvert, fara síðan í jólaleyfi 15. desember og á þeim tíma væru tvö stutt þinghlé þar sem þingmönnum gæfist tækifæri til að fara um kjördæmi sín og halda fundi um þau málefni sem hæst ber hverju sinni. Þetta hef ég talið að væri til bóta og síðan yrðu aftur hafin störf hér 6. janúar og ekki lokið fyrr en í fyrst lagi eftir maílok. Með þessu lagi næðist miklu meiri vinnutími í Alþingi og hægt væri að setja stífari reglur um það að mál kæmust á dagskrá og fengju afgreiðslu.
Ég tek líka undir það sem fram kom í máli hv. þm. Jóhanns Ársælssonar að það er til vansa árum saman að við skulum þurfa að vera að endurflytja mál, vegna þess sérstaklega að þingið fær ekki að taka afstöðu til þeirra, þau komast ekki inn í þingsalinn þannig að menn geti þá greitt atkvæði um málið og hafnað því eftir atvikum, þ.e. þegar meiri hluti annaðhvort hafnar máli eða styður það. Málið fær ekki niðurstöðu.
Ég held að mjög nauðsynlegt sé að endurskoða margt við störf þingsins. Það mætti ná verulega miklu meiri vinnutíma út úr því og markvissari vinnu þó að þingtíminn væri ekki lengdur meira en ég hef hér gert tillögu um, eins og ég hef reyndar áður gert opinbera. Ég tel að með því lagi væri hægt að ná mjög virkum þingtíma og miklu meiri afköstum og markvissari vinnu.
Ég vil líka vekja athygli á því í þessari umræðu að oft er látið í veðri vaka að þingmenn fari í eitthvert sérstakt frí yfir sumartímann, þetta sé bara einn samfelldur frítími sem þingmenn hafi yfir sumartímann. Þetta er algjör misskilningur að mínu viti, eins og ég hef kynnst þingstarfinu. Við þingmenn notum þennan tíma mikið til ferðalaga og til að mæta á ýmsa fundi og samkomur, vítt og breitt um landið. Við notum einnig þennan tíma til að hitta kjósendur okkar og vinna í flokksstarfinu.
Kannski má segja að tíminn frá upphafi júlímánaðar og fram yfir mánaðamótin júlí/ágúst sé sá tími sem þýðir lítið að boða til funda en þess meiri ástæða er til að vera þátttakendur í hinum ýmsu atburðum sem þjóðin býður upp á vítt og breitt um landið, margar hátíðir kaupstaða o.s.frv. Það er ástæða fyrir þingmenn til að vera viðstaddir og hitta fólk á þeim stöðum og taka þátt í atburðum.
Ég tel að allt sem ég hef nefnt sé hluti af starfi þingmanna og þess vegna lít ég ekki svo á að þótt þingstörf leggist niður inni í þessu húsi í ákveðna mánuði á ári séu þingmenn þar með í endalausu sumarfríi. Það er misskilningur að mínu viti.