131. löggjafarþing — 133. fundur,  11. maí 2005.

Breyting á ýmsum lögum á orkusviði.

396. mál
[18:47]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Í fyrsta lagi er það pólitísk ákvörðun að gera það sem hæstv. ráðherra kallar að færa þessa starfsemi inn í markaðsumhverfi. Það er að sjálfsögðu mannaverk. Það er ekkert náttúrulögmál að þannig þurfi þetta að vera. Þegar menn tala um markaðsvæðingu þessa kerfis og samkeppni, væri þá ekki rétt að hafa í huga hvers eðlis starfsemin er? Þetta er veitustarfsemi. Hitaveitustarfsemi er auðvitað veitustarfsemi og ekkert annað. Hins vegar ber að hafa í huga hver á þessi fyrirtæki. Þetta eru opinber fyrirtæki. Auðvitað er það eins og hver annar brandari að nota það sem einhvers konar skálkaskjól að þetta þurfi að fara inn í það sem menn kalla markaðsumhverfi.

Að sjálfsögðu var ýmislegt sem mælti með breytingum í orkumálum í landinu. Það hafa lengi verið tilfinnanlegar skipulagsskekkjur í því. En spurningin er þá: Hvernig eru þær breytingar? Er það í rétta átt sem hæstv. ráðherra beitir sér fyrir, t.d. að sökkva þó þeim landshlutabundnu fyrirtækjum sem þar voru? Hefði ekki einmitt verið rétt að nota tækifærið og fara í gagnstæða átt, stefna að þróun sem skilaði landshlutabundnum fyrirtækjum á þessu sviði? Slíkt skipulag hefur skilað góðum árangri. Gott dæmi er Orkubú Vestfjarða sem ríkisstjórninni er því miður að takast að fara með eins og raun ber vitni.

Síðan kemur hæstv. ráðherra og veru segir: Það verður bara að hafa það þótt þetta komi nú svona út, þetta er tilraunastarfsemi. Þetta er svona tilraunaár. Það er sem sagt skotið fyrst og síðan spurt. Það er akkúrat það sem hefur einkennt framgöngu stjórnvalda. Trúarbrögðin ráða ferðinni. Menn gefa sér þá niðurstöðu fyrir fram að þetta skuli markaðsvætt og þetta skuli skilgreint sem hver önnur viðskipti í ágóðaskyni en ekki sem þjónusta við raforkukaupendur eða heitavatnsnotendur í landinu. Þar liggur auðvitað hundurinn grafinn. Það er frjálshyggjan, markaðshyggjan, sem hefur alfarið völdin í þessari ríkisstjórn og Framsóknarflokkurinn er orðinn hægrisinnaðasti stjórnmálaflokkur í landinu.