131. löggjafarþing — 133. fundur, 11. maí 2005.
Breyting á ýmsum lögum á orkusviði.
396. mál
[18:57]
Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):
Hæstv. forseti. Í ræðu minni lagði ég aðeins eina spurningu fyrir hæstv. ráðherra. Hún var þessi: Hvernig ætlar ráðherra að bæta því fólki skaðann sem tekið hefur á sig orkuverðshækkunina? Ég fékk engin svör við því. Ég óska eftir þeim í síðara andsvari hæstv. ráðherra.