131. löggjafarþing — 133. fundur,  11. maí 2005.

Umgengni um nytjastofna sjávar.

732. mál
[22:05]

Magnús Þór Hafsteinsson (Fl) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Samþykkt þessa frumvarps lögfestir að útgerðum fiskiskipa verði skylt að telja meðafla við uppsjávarveiðar til frádráttar kvóta. Meðaflann á að meta út frá niðurstöðum sýnatöku úr afla skipanna. Við í Frjálslynda flokknum teljum að þetta frumvarp sé bæði illa og hroðvirknislega unnið, svo illa og hroðvirknislega að við höfum lagt til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar. Á það er að sjálfsögðu ekki hlustað frekar en fyrri daginn en ég vil gera í örfáum orðum grein fyrir atkvæði okkar.

Frumvarpið er fyrst og fremst tilræði við kolmunnaveiðar hér á landi en þær veiðar hafa skilað þjóðarbúinu gríðarlega miklum verðmætum frá því að þær hófust af alvöru árið 1997. Það eru einkum hafnir á Austfjörðum sem hafa notið góðs af þessum veiðum. Undanfarin fjögur ár hefur íslenski flotinn skilað 1,6 milljónum tonna af þessum fiski í hafnir hér við land. Þetta er búið að vera eitt mesta fiskveiðiævintýri okkar á seinni árum en nú ætlar ríkisstjórnin að setja lög sem munu verða mjög íþyngjandi fyrir útgerðir þessara skipa. Aðalatriði málsins eru þessi:

Mat á umfangi meðafla við uppsjávarveiðar er byggt á mjög litlum rannsóknum sem benda þó eindregið til að vandamálið sé hverfandi miðað við heildaraflann. Brugðist hefur verið við vandanum með því að loka veiðisvæðum. Það er verið að þróa nýja veiðitækni sem lofar mjög góðu sem mun leysa þennan vanda.

Sem sagt: Þessi lög eru óþörf.

Sjávarútvegsnefnd hefur ekki fengið neinar upplýsingar um það hvernig eigi að útfæra reglur um framkvæmd þessara laga. Sýnt þykir að eftirlit og mælingar á meðafla í förmum uppsjávarskipa geta orðið gríðarlega kostnaðarsamar. Ef gæta á jafnræðis verður ekki annað séð en að fara verði í gegnum afla hvers einasta skips. Öðruvísi er ekki hægt að framkvæma þetta. Þetta er gríðarlega dýrt. Það liggur ekki fyrir hverjir eigi að greiða þennan kostnað en mér segir svo hugur um að reikningurinn verði sendur útgerðum skipanna.

Við í Frjálslynda flokknum höfnum auknum álögum á sjávarútveginn. Er ekki nóg komið af eftirlitsiðnaði í þessari grein? Er nú ekki nóg komið af óþarfaskattlagningum á þessa grein undir forustu núverandi stjórnarflokka sem verja kvótakerfið með kjafti og klóm?

Lögin geta valdið miklum vandræðum hjá færeyskum skipum sem hafa veiðiréttindi hér við land samkvæmt gildandi samningi milli þjóðanna. Þeir hafa engan kvóta fyrir meðafla — en þeir munu fá meðafla.

Síðast en ekki síst eiga þessi lög að taka gildi um næstu mánaðamót, á miðri vertíð þessara skipa. Hvernig ætlum við að gæta jafnræðis, hvernig ætlum við að fara með þau skip sem þegar hafa hafið veiðar og eru þegar búin að afla mjög vel landi og þjóð til heilla? Hvernig ætlum við að fara með þau miðað við hin skipin sem hefja veiðar eftir 1. júní?

Þessum spurningum er ósvarað. Mönnum sem hafa vit á þessum veiðum hefur ekki verið leyft að koma fyrir nefndina þrátt fyrir ítrekaðar óskir okkar. Við munum sitja hjá við atkvæðgreiðslu þessa og þvo hendur okkar af þessum vitlausa gjörningi.