131. löggjafarþing — 134. fundur,  11. maí 2005.

Tilk.

[22:57]

Gunnar Örlygsson (S):

Herra forseti. Ég stend upp til að greina frá því að ég hef sagt mig úr þingflokki Frjálslynda flokksins. Þessi ákvörðun á sér aðdraganda og er tekin að vel yfirlögðu ráði. Til grundvallar liggja málefnalegar ástæður. Einnig er því ekki að leyna að samskiptaörðugleikar gera það að verkum að ég á ekki lengur samleið með þingflokki Frjálslynda flokksins. Þetta hef ég tilkynnt formanni flokksins.

Á landsfundi Frjálslynda flokksins sem var haldinn fyrr á þessu ári freistaði ég þess að hafa áhrif á stefnumótun flokksins til framtíðar. Í því sambandi lagði ég fram fjölmargar tillögur sem ekki hlutu það brautargengi sem ég hefði vænst. Áherslur flokksins og baráttumál mín eru í mörgum tilvikum ósamrýmanleg. Í öllum stjórnmálaflokkum og í samskiptum fólks er nauðsynlegt að til staðar sé gagnkvæmt traust, drengskapur og umburðarlyndi. Á það hefur skort innan þingflokksins. Þegar það fer saman við málefnalegan ágreining eru ekki forsendur til frekara samstarfs og hlýt ég því að kveðja flokkinn og þá félaga mína sem þar starfa áfram.

Grundvallarskoðanir mínar í stjórnmálum byggjast á trúnni á einstaklingsframtak, öfluga og fjölþætta atvinnustarfsemi sem leggur grundvöllinn að traustu velferðarkerfi. Sjálfur hef ég m.a. lagt áherslu á málefni sem snúa að bættum kjörum aldraðra. Ég mun ekki láta þar staðar numið. Í sjávarútvegsmálum hef ég talað fyrir breytingum sem einkanlega snúa að aukinni samkeppni á vísindasviðinu sem er forsenda árangurs. Frjáls samkeppni hugmynda er jafneðlileg og samkeppni í atvinnulífinu. Ég álít að hagsmunum fólks og þá sérstaklega fjölskyldufólks verði best borgið með einföldu skattkerfi þar sem álögum er stillt í hóf.

Ég tel að ég geti fundið skoðunum mínum bestan farveg í Sjálfstæðisflokknum. Innan flokksins ríkir skilningur á mismunandi áherslum undir öflugri forustu og því hef ég ákveðið að ganga til liðs við þingflokk sjálfstæðismanna.

Í síðustu alþingiskosningum leiddi ég lista Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi og fengum við 2.890 atkvæði. Hvergi á landinu fékk flokkurinn jafnmörg atkvæði. Við þetta fólk og aðra stuðningsmenn mína vil ég segja: Ég hef tekið þessa ákvörðun að vandlega athuguðu máli og er sannfærður um að ég vinni málstað okkar best gagn með þeirri ákvörðun sem hér liggur fyrir og ég hef nú greint frá.