132. löggjafarþing — 1. fundur,  3. okt. 2005.

Mannabreytingar í kjörbréfanefnd.

[15:16]
Hlusta

Forseti (Sólveig Pétursdóttir):

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur óskað eftir að gera eftirfarandi breytingar á skipan þingmanna flokksins í kjörbréfanefnd, sbr. 16. gr. þingskapa: Arnbjörg Sveinsdóttir taki sæti Einars K. Guðfinnssonar, Birgir Ármannsson taki sæti Sigríðar A. Þórðardóttur og Bjarni Benediktsson taki sæti Sólveigar Pétursdóttur.

Ef ekki eru athugasemdir verður áðurgreind breyting á skipan kjörbréfanefndar.