Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Frú forseti. Góðir landsmenn. Það var ósköp lágt risið á þjóðarleiðtogum heimsins þegar þeir tíndust í ræðustól hjá Sameinuðu þjóðunum á dögunum í tilefni af því að fimm ár voru liðin frá því að þúsaldaryfirlýsingin var samþykkt á allsherjarþinginu hinu 55. í september árið 2000. Lítið bólar á efndum hinna háleitu markmiða um að útrýma hungri, helminga fátækt, tryggja öllum börnum skólagöngu o.s.frv., enda ræddu leiðtogarnir lítið um hvernig menn hefðu notað tímann þessi fimm ár þegar þeir endurtóku að markmiðin væru háleit. Tólf hundruð milljónir manna á þessari jörð búa við það sem er skilgreint sem örbirgð. Átta hundruð milljónir manna eru vannærð, svelta. Þrjátíu þúsund börn deyja á degi hverjum, fjöldi sem nemur einum tíunda af fjölda íslensku þjóðarinnar deyr vegna vannæringar eða skorts á lyfjum við læknanlegum sjúkdómum. Með því að til væri matur, bóluefni og lyf á þeim svæðum heimsins þar sem mest er þörfin mætti á hverjum tíu dögum bjarga lífi jafnmargra barna og við Íslendingar erum að fólksfjölda. Fyrir brot af fjáraustrinum sem fer í stríðsreksturinn í Írak einan mætti gerbreyta ástandi þessara mála. Fyrir brotabrot af því sem fer í vígbúnað, heræfingar og hvers kyns stríðsleiki mætti standa við þúsaldarmarkmiðin og gera gott betur.
Og talandi um Íraksstríðið. Það er athyglisvert að nú upp á síðkastið hafa jafnólíkir aðilar og Colin Powell og enska biskupakirkjan beðist afsökunar á Íraksstríðinu. Colin Powell er nógu stór maður til þess að segja að það muni verða blettur á sínum ferli um ókomin ár að hafa orðið fyrir því að leggja röng gögn fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til þess að afla innrásinni stuðnings.
Kofi Annan hefur sagt að Íraksstríðið hafi verið tvímælalaust brot á stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, ólöglegt árásarstríð. Þýskur stjórnsýsludómstóll sýknaði í næstliðinni viku þýskan hermann sem hafði neitað að taka þátt í aðgerðum sem tengdust Íraksstríðinu af því að það væri brot á alþjóðalögum. Það eru engir að verða eftir nema Bush, Blair, Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson sem enn reyna að halda því fram að Íraksstríðið hafi verið lögmæt og réttlætanleg aðgerð. Nú er þess tæplega að vænta að Davíð Oddsson muni úr þessu biðja þing og þjóð afsökunar á því hvernig nafn Íslands var misnotað með því að setja það á lista yfir hinar vígfúsu þjóðir. En Halldór Ásgrímsson er hér enn og nú er spurningin: Er hann nógu stór til að viðurkenna mistök og biðjast afsökunar? Colin Powell var það en sennilega hvorki Halldór né Davíð.
Og hingað heim að stefnuræðu forsætisráðherra. Ég marglas þessa ræðu, þrisvar sinnum a.m.k. Ekki af því í sjálfu sér að hún sé svo rífandi skemmtileg eða mikið bókmenntaverk. Það er ekki um það að deila hvað þar er best, það sem haft er eftir skáldinu góða frá Kirkjubóli. Nei, ég las þessa ræðu aftur og aftur til að leita af mér allan grun — hvort það væri virkilega þannig að forsætisráðherra, og yfirmaður efnahagsmála að ég hélt, viki ekki einu einasta orði að því jafnvægisleysi í efnahagsmálum sem mjög er til umræðu alls staðar annars staðar í þjóðfélaginu, enn þá á ríkisstjórnarheimilinu, eða að þeim verkefnum sem fram undan eru í hagstjórn á næstu dögum. En það er staðreyndin. Forsætisráðherra víkur í ræðu sinni ekki einu orði að uppsögnum í sjávarútvegi, að erfiðleikum ferðaþjónustunnar, að gjaldþroti Slippstöðvarinnar á Akureyri og erfiðleikum skipaiðnaðarins eða almennt að skilyrðum útflutnings- og samkeppnisgreina. Staðreyndin er sú, góðir landsmenn, að við erum núna að upplifa af fullum þunga ruðningsáhrif stóriðjustefnunnar sem eru að ýta öðru atvinnulífi úr vegi. Við upplifum það í gegnum uppsagnir og starfsemi sem er að loka. Við upplifum það í gegnum störf sem flytjast úr landi. Útflutnings- og samkeppnisiðnaðurinn greiðir atkvæði um þetta ástand með fótunum og fer úr landi og þetta eru aðeins sýnilegu áhrifin, þau sem koma í fréttum. Þar við bætast öll glötuðu tækifærin, öll störfin og verðmætasköpunin sem aldrei verður til vegna þess að auðvitað eru skilyrði til nýsköpunar í útflutnings- og samkeppnisrekstri úti í hafsauga við þessar aðstæður. Það er ótrúlegt en satt, góðir landsmenn, að hvergi vottar fyrir því, ekki í stefnuræðu forsætisráðherra, ekki í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins og ekki í fjárlagafrumvarpinu, að ríkisstjórnin ætli að axla ábyrgð á efnahagsmálunum.
Óbreyttri stefnu er haldið áfram með skattalækkanir sem gagnast þeim tekjuhæstu mest og verka sem olía á eld aukinnar einkaneyslu og þenslu. Það er áframhaldandi stóriðjutrúboð. Það er sagt í þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins að góðar líkur séu á frekari stóriðjuframkvæmdum á næstunni en þegar hafa verið ákveðnar. Og hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra veður um, gengur laus ef svo má að orði komast í þessu samhengi, og boðar álver hér og álver þar, álver í Helguvík, álver á Norðurlandi, stækkun álvers í Straumsvík, rafskautafabrikku í Hvalfirði og hvað það nú er. Auðvitað er þetta algerlega með ólíkindum. Ef troða á þessum framkvæmdum öllum inn í íslenska hagkerfið í viðbót við þá framkvæmdahrinu sem nú stendur yfir eða í beinu framhaldi af henni, er ekkert ljós við endann á göngunum sem menn hafa verið að vona að væri fyrir hönd annars atvinnulífs. Þá verður núverandi ástand með ofurgengi á krónunni, viðskiptahalla og þenslu viðvarandi. Þá óttast ég að einhverjir fari að missa móðinn ef ástandið sem greiningardeild eins bankans kallar ógnarjafnvægi, og Seðlabankinn kallar stóraukið jafnvægisleysi, á að verða viðvarandi.
Hvernig stendur á því að forsætisráðherra minnist ekki einu orði í ræðu sinni á þá harkalegu ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um 0,75% svo seint sem 29. síðasta mánaðar eða víkur að því með hversu alvarlegum hætti Seðlabankinn fjallar þar um málin? Hver eru viðbrögð ríkisstjórnarinnar við hjálparbeiðni Seðlabankans, við ákalli Seðlabankans sem aftur og aftur hefur sagt að peningamálaaðgerðir hans einar og sér muni ekki nægja? Þær muni ekki duga til að ná tökum á ástandinu. Hvernig stendur á því að forsætisráðherra víkur ekkert að þessu? Í reynd er það verra en svo. Stundum hefur mátt skilja forsætisráðherra þannig að Seðlabankinn væri vandamálið. En það heitir að skjóta sendiboðann, boðbera hinna válegu tíðinda. Kannski væri það betri samlíking hér að segja að ríkissjórnin vilji kenna slökkviliðinu um eldsvoðann. Ríkisstjórnin fer fyrst um og kveikir í hagkerfinu með stóriðjustefnu sinni, með skattalækkunum, með þeim mistökum sem gerð hafa verið á fasteignamarkaði, með því að ýta undir þenslu, dansar svo í kringum eldana og þegar Seðlabankinn kemur og reynir að slökkva í er honum kennt um brunann. Þannig er þetta. Og það er ekki von á góðu ef ríkisstjórnin ætlar hér eftir sem hingað til að láta sem henni komi þetta ekki við eða láta sem allt sé í himnalagi. Er þá búið að leggja niður ráðuneyti efnahagsmála í ríkisstjórninni? Er það orðið úrelt starfsheiti? Er Halldór Ásgrímsson búinn að segja af sér sem yfirmaður efnahagsmála og hver tók þá við? Guðni Ágústsson kannski? Fróðlegt væri að vita það.
Hvernig er það með Sjálfstæðisflokkinn? Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að elta þennan nýja andlega leiðtoga sinn, Halldór Ásgrímsson, í bandi í gegnum brunarústir íslenskra atvinnuvega allt til enda til þess eins að Framsóknarflokkurinn geti þjónað stóriðjutrúboði sínu? Vandinn er auðvitað sá að báðir stjórnarflokkarnir, og reyndar fleiri, eru draghaltir í þessari umræðu. Framsóknarflokkurinn mun aldrei viðurkenna að neitt sé að stóriðjustefnunni. Sjálfstæðisflokkurinn mun aldrei viðurkenna að ekki sé alltaf rétt að lækka skatta hversu heimskulegt sem það er í hagstjórnarlegu tilliti. Og Samfylkingin er líka draghölt því hún studdi meira og minna, bæði í borgarstjórn og á þingi, þessa stóriðjustefnu og gerðist líka meðvirk í kosningabaráttunni og lofaði milljarðatuga skattalækkunum.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð er eini flokkurinn sem hefur lagt fram tillögur um raunhæfar aðgerðir til þess að reyna að ná tökum á ástandinu. Við leggjum til að horfið verði frá hugmyndum um frekari stóriðjuframkvæmdir næstu sjö árin. Við leggjum til að hætt verði við skattalækkanirnar. Við leggjum til að farið verði í nýtt áhættumat í fjármálakerfinu.
Við leggjum til að Seðlabankinn og stjórnvöld vinni saman en ekki hvor gegn öðrum til þess að ná tökum á ástandinu. Við leggjum til að menn leiti eftir víðtæku samstarfi aðila vinnumarkaðar, stjórnvalda og fleiri hagsmunasamtaka í anda nýrrar þjóðarsáttar því það eru alvarlegir tímar.
Vandinn núna, og það sem gerir ástandið miklu hættulegra en nokkru sinni fyrr, er hin gríðarlega skuldsetning heimila, atvinnulífs, sveitarfélaga og þjóðarbúsins í heild út á við. Við erum að slá fleiri Íslandsmet og heimsmet þessa dagana, hæstvirtur forsætisráðherra, en þau sem þar var talið upp. Viðskiptahalli upp á 14% er meiri en nokkru sinni í 60 ára sögu þjóðhagsreikninga. Skuldir heimilanna nálgast nú eitt þúsund milljarða, ígildi einnar landsframleiðslu. Innan tíðar verða íslensk heimili hin skuldsettustu í öllu OECD. Fyrir var íslenskt atvinnulíf skuldsettara en nokkurs staðar annars staðar þekkist við sambærilegar aðstæður. Sveitarfélögin hafa safnað skuldum stanslaust í einn og hálfan áratug, erlendar skuldir þjóðarbúsins voru um mitt sumar 2.500 milljarðar kr. Hreinar erlendar skuldir að frádregnum eignum erlendis, sem menn guma af á móti, eru hærra hlutfall en nokkru sinni fyrr í sögunni eða 135% af hreinni landsframleiðslu. Þar er einnig Íslandsmet að falla.
Því miður er það svo, frú forseti og góðir landsmenn, að góðærið sem menn guma svo mikið af er miklu frekar veisla, eyðsluhátíð þar sem að verulegu leyti er slegið lán fyrir veisluföngunum. Því er líka skelfilega misskipt — eða hvað? Ef raunverulegt góðæri er eins mikið á Íslandi og kraftaverkamennirnir, samkvæmt eigin lýsingum, forsætisráðherra og utanríkisráðherra, vilja vera láta, af hverju er þá ekki hægt að gera betur við t.d. þann hluta aldraðra sem ekkert hefur nema tryggingabæturnar? Ekki er sá hópur vandamálið í sambandi við viðskiptahalla og skuldasöfnun. Það eru ekki aldraðir Íslendingar á strípuðum tryggingabótunum sem stífla allar hafnir með innflutningi á amerískum pallbílum. Það eru einhverjir aðrir.
Nei, frú forseti, góðir landsmenn, það þarf að koma þessari ríkisstjórn frá og þó fyrr hefði verið. Við erum lánsöm að eiga gott land með mikla möguleika og þó að það komi rysjótt veður og kuldatíð í efnahagsmálunum gengur það yfir. Við munum vinna okkur út úr þessum erfiðleikum en til þess þarf að breyta um stefnu. Þess vegna viljum við mynda velferðarstjórn, vinstri græna velferðarstjórn, sem hefur umhverfisvernd og velferð hins almenna manns að leiðarljósi. Það mun vora fyrr en varir, bæði úti í náttúrunni og líka í stjórnmálunum. Við munum losna við þessa þreyttu menn og taka við og þá fer virkilega að grænka aftur á Íslandi. — Góðar stundir.