Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Frú forseti. Góðir landsmenn. Það sem mér datt í hug meðan forsætisráðherra var að flytja ræðu sína áðan var gömul bíómynd með Mel Brooks þar sem hann lék sólkonunginn í gríðarlegum blúnduskyrtum og sokkabuxum og hælaháum skóm og sagði stöðugt: „Það er gott að vera kóngur.“ Það var nú tilkomumeiri búningurinn á Mel Brooks en hæstv. forsætisráðherra en óneitanlega var tónninn í ræðunni svipaður tóninum í ræðu Mel Brooks í þessari bíómynd. Það er gott að vera kóngur.
Hvað notaði hæstv. forsætisráðherra oft efsta stigs lýsingarorð? Og sjálfshólið, það fór út yfir öll mörk. Ég held að það hljóti fleirum en mér að hafa blöskrað og sumir hafa kannski bara beðið eftir því að hann segði að við værum hamingjusamasta þjóð í heimi. En þegar forsætisráðherrann lítur í baksýnisspegilinn, hvað sér hann þá? Einhver örfá ár sem Framsóknarflokkurinn var ekki í ríkisstjórn, einhvern tíma fyrir 1995. Þá sér hann ríkissjóð sem rekinn var með halla, þá sér hann gjaldþrot sem voru daglegt brauð. Mér þykir leiðinlegt að þurfa að kippa forsætisráðherra niður á jörðina og spyrja hann hvort hann hafi ekki heyrt um Slippstöðina á Akureyri, hvort hann hafi ekki heyrt um rækjuvinnsluna og hvort hann viti ekki að síðast var halli á ríkissjóði árið 2003. Hlustaði forsætisráðherra ekki á skilaboðin frá stjórn Eflingar í morgun um stöðu kjarasamninganna? Forsendur kjarasamninga eru brostnar. Verðbólgan er nú tvöfalt meiri en forsendur kjarasamninganna gerðu ráð fyrir og kaupmáttur stórs hóps launafólks hefur hrapað. Og hverju kennir stjórn Eflingar um? Rangri stjórnarstefnu. En það má vel vera að það sé gott að vera kóngur.
Verðbólgan vex frá mánuði til mánaðar og launafólk skelfist eðlilega. Hagfræðingar og greiningardeildir bankanna kenna þenslunni um, þenslunni sem allir vita að er heimatilbúin uppskrift, fengin hjá Framsóknarflokknum í eldhúsi þeirra og heitir stóriðjustefna. Þetta virðast allir sjá nema forsætisráðherrann. Hann segir að hækkandi verðbólga sé alfarið — og hann notaði orðið „alfarið“ — hækkunum fasteigna og olíuverðs að kenna. Tóku menn eftir þessu? En það er gott að vera kóngur.
Hvernig á fólk að hafa trú á ríkisstjórn sem leggur fram fjárlagafrumvarp sem greinilega hefur enga trú á að Seðlabankanum takist að hemja verðbólguna á næstu árum? Hagfræðingur greiningardeildar Landsbanka Íslands hvatti í morgun til þess að ríkisstjórnin og Seðlabankinn færu nú að tala saman, reyndu að finna sameiginlegar lausnir á málunum. Sömu tillögu er raunar að finna í fyrsta þingmáli Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, að menn fari að tala saman á þessum bæjum. Ég spyr: Hvenær tala þeir ráðherrar sem hér sitja yfir höfuð við nokkurn mann? Hvenær talar ráðherra Framsóknarflokksins við nokkurn mann eða hefur samræður og skapandi hugarflug um sameiginlegar lausnir mála?
Nei, þessum háu herrum dettur auðvitað allt of sjaldan í hug að leita eftir sjónarmiðum t.d. minni hlutans á Alþingi. Í mínum huga er það þannig að lýðræðið einkennist af því að meiri hlutinn taki tillit til sjónarmiða minni hlutans, en slíkt er ekki viðhaft af þessari ríkisstjórn. Hér þumbast menn áfram og fá sitt fram með hausinn ofan í bringu. Nei, þetta er ekki traustvekjandi ríkisstjórn. Það getur vel verið að það sé gott að vera kóngur í þessari ríkisstjórn, sérstaklega þegar maður getur sáldrað um sig silfrinu sem fékkst fyrir söluna á almannafyrirtækinu Símanum en því silfri verður auðvitað ekki útdeilt nema einu sinni, góðir landsmenn, bara einu sinni.
Nú auglýsir félagsmálaráðuneytið daglega: „Takið þátt í umræðunni“, en láist að bæta við: Áttið ykkur á því að við munum ekki taka mark á því sem þið ætlið að segja. Slíka pólitík hefur þessi ríkisstjórn viðhaft. Eða er verið að hlusta á Svarfdælinga sem vilja afturkalla sameiningu sína við Dalvíkurbæ eftir að skólanum þeirra var lokað? Er verið að hlusta á Félag eldri borgara, lífeyrisþega eða öryrkja? Það kemur í ljós í fjárlagafrumvarpinu að draga á úr möguleikum öryrkja til sjálfshjálpar með því að ríkisstjórnin ætlar að spara 300 milljónir á kostnað þeirra einna.
Unga fólkið fer ekki varhluta af þessari arfavitlausu hagstjórn. Það fer að verða spurning hvort unga kynslóðin þurfi ekki að fara að gæta hagsmuna sinna og verja þá fyrir ágangi ríkisstjórnarinnar. Kynslóðirnar sem keyptu húsin sín fyrir svona 40, 50 árum náðu að greiða þau að fullu á 10, 20 árum og það var ekki lífsnauðsyn þá að eiga bíl. Þær kynslóðir þurftu heldur ekki að taka dýr námslán. Nú eiga bankarnir unga fólkið og það er að hluta til að kenna arfavitlausri hagstjórn þessarar ríkisstjórnar. Og forsætisráðherra keyrir þensluvaldandi stóriðjustefnu sína áfram með harðri hendi, áformar að bræða hér innan fárra ára 1.400 þús. áltonn ofan í útlenda auðhringa en skellir skollaeyrum við aðvörunum sem koma úr öllum áttum.
Það er alltaf hollt að kunna sér hóf, var það ekki það sem forsætisráðherrann sagði? Já, það er alltaf hollt að kunna sér hóf og ég trúi því ekki að það sé gott að vera kóngur í þessari ríkisstjórn. — Góðir landsmenn, góðar stundir.