Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Gott kvöld, góðir landsmenn. Nú höfum við hlýtt á boðskap forsætisráðherra Íslands, forsætisráðherra Framsóknarflokksins sem hefur auðgast á eigin stjórnarathöfnum og svo auðvitað vinir hans og vandamenn. Þekktur er hann af því að hafa makað krókinn þegar hann beitti sér fyrir að koma á kvótabraskskerfi í sjávarútvegi sem hefur leikið bæði sjávarútveginn og landsbyggðina grátt og svo auðvitað af dæmalausri sölu Búnaðarbanka Íslands, en hann var eins og alþjóð veit seldur fyrir lítið til S-hópi Framsóknarflokksins.
Almenningi misbýður þessi framganga Framsóknarflokksins. Ég var staddur í Kaupfélagi Skagfirðinga á dögunum og hitti þar gamlan framsóknarmann sem spurði mig út í stefnu hins nýja Framsóknarflokks og þá sérstaklega byggðamálin, Íraksstríðið, kvóta og bankabraskmálin. Hann spurði mig ítrekað: Hvað hefur orðið um samvinnuhugsjónina, hvað hefur orðið um minn gamla, góða Framsóknarflokk? Hann undraðist það mjög að forsætisráðherra hefði haldið því fram að hann hefði aldrei efast um óhlutdrægni sína við söluna á Búnaðarbankanum, ekki einu sinni þegar hann stóð í að selja fjölskyldufyrirtæki sínu bankann.
Ég svaraði gamla manninum eitthvað á þá leið að ég væri ef til vill ekki rétti maðurinn til að svara til um misgjörðir hins nýja Framsóknarflokks en honum væri velkomið að vinna þjóðinni gagn og ganga í Frjálslynda flokkinn.
Í stuttu máli var stefnuræðan sem forsætisráðherra flutti áðan mjög óábyrgt blekkingartal um stöðugleika og aðhald í rekstri ríkisins, skreytt með símagulli.
Það er einfaldlega rangt hjá forsætisráðherra að halda því fram að það gæti mikils stöðugleika í þjóðarbúskapnum. Það þarf ekki frekari vitnanna við en að lesa rit Seðlabankans sem kom út í síðustu viku, en ritið hefst á því að greina frá því að ójafnvægi í þjóðarbúskapnum hafi aukist og það sé meira nú en um langt skeið.
Í riti Seðlabankans segir enn fremur að viðskiptahalli sé meiri en áður, skuldsetning heimila og fyrirtækja meiri og gífurlegar hækkanir á íbúðarhúsnæði. Það er einnig rangt hjá oddvita ríkisstjórnarinnar að gætt hafi einhvers aðhalds í útþenslu ríkisútgjalda og sérstaklega á það við um utanríkisráðuneytið sem oddvitar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa skipst á að stýra síðustu 10 árin, en það líður varla sá mánuður að ekki berist fréttir af skipan nýs sendiherra og oftar en ekki er um innvígðan og innmúraðan mann í stjórnarflokkunum að ræða.
Í síðasta mánuði kom út ríkisreikningur fyrir árið 2004 og við lestur hans sést svart á hvítu að ríkissjóður hefur ekki verið rekinn með miklu aðhaldi á síðasta ári en útgjöldin í fyrra urðu 27.000 milljónum hærri en upprunalega var reiknað með. Er þetta dæmi um mikið aðhald? Ekki finnst mér það.
Ríkisstjórnin boðar nú í haust að hún ætli ekki að breyta í neinu útgjaldagleði sinni nema þá helst að klípa af elli- og örorkulífeyrisþegum bensínstyrkinn og er það í samræmi við stefnu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að færa skattbyrðar og álögur í auknum mæli af þeim sem hafa háu launin á þá sem hafa lágu launin og bág kjör. Þetta stríðir algerlega gegn stefnu Frjálslynda flokksins enda hefur flokkurinn boðað hækkun skattleysismarka, en á meðan hafa stjórnvöld einbeitt sér að þveröfugum aðgerðum
Við Íslendingar verðum að spyrja okkur þeirrar spurningar hvað við viljum hafa ójöfnuðinn mikinn í landinu en opinber gögn bera með sér að ójöfnuðurinn hafi aukist gríðarlega í valdatíð Framsóknarflokksins sem gefur sig út fyrir að vera félagshyggjuflokkur. Sömuleiðis hefur hlutur hins opinbera af þjóðarkökunni aukist gríðarlega í valdatíð Sjálfstæðisflokks sem kallar sig stundum flokk einkaframtaksins.
Aukinn ójöfnuður getur valdið ýmsum félagslegum vanda og það getur orðið dýrkeypt í framtíðinni. Við í Frjálslynda flokknum viljum gæta aðhalds í opinberum rekstri og auka frelsi atvinnuveganna, sérstaklega til sjávar og sveita og koma á öruggri og sanngjarnri afkomu fyrir öryrkja og eldri borgara. Af því væri einnig ávinningur að leita leiða til þess að öryrkjar kæmust í meira mæli út á vinnumarkaðinn á ný.
Það er rangt hjá oddvita ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að ríkissjóður hafi verið rekinn með umtalsverðum afgangi á umliðnum árum. Staðreyndirnar eru því miður þær að ríkissjóður var rekinn með 6,1 milljarðs króna halla árið 2003 og 8,1 milljarðs króna halla árið þar á undan.
Auðvitað er það alvarlegt að forsætisráðherra skuli flytja hér bæði villandi og rangar upplýsingar en alvarlegast af öllu er þó að í stefnuræðunni eru ekki boðaðar neinar aðgerðir í efnahagsmálum eða hvatning til þjóðarinnar.
Óveðurský í efnahagsmálum hrannast upp og flestir eru farnir að viðurkenna að svo sé, nema stjórnarmeirihlutinn sem hefur hér nýjan þingvetur með bundið fyrir augun. Seðlabankinn er einn skilinn eftir með það verkefni að halda aftur af þenslunni í þjóðfélaginu og beitir fyrir sig vaxtahækkunum. Þessar gríðarlegu vaxtahækkanir ýta síðan undir spákaupmennsku og hækkandi gengi íslensku krónunnar sem engin innstæða er fyrir.
Hér er kominn vítahringur sem ábyrg stjórnvöld ættu að ræða sem vanda í stað þess að loka augunum. Útflutningsgreinunum er ætlað að ráða fram úr óviðunandi rekstrarskilyrðum sem stjórnvöld hafa skapað. Afleiðingarnar eru skelfilegar og birtast m.a. í að boðaðar hafa verið lokanir á rækjuvinnslum víða um land. Það er orðið löngu tímabært að leita annarra leiða en að hækka vextina og skoða m.a. að auka bindiskyldu bankanna eða hvetja til sparnaðar.
Frjálslyndi flokkurinn vill boða sparnað meðal almennings. Sú glansmynd sem dregin er upp í stefnuræðu forsætisráðherra er ekki sannleikanum samkvæm. Þessi gífurlegi viðskiptahalli sem er afleiðing þess að við flytjum miklu meira inn í landið en út úr því er ávísun á verðbólgu og gengisfall krónunnar ef ekkert er aðhafst. Skilaboð Frjálslynda flokksins til almennings í landinu eru: Aukið sparnað, ríkisstjórnin gerir það ekki. Það er besta leiðin til þess að verjast mögulegu verðbólguskoti og besta leiðin til sparnaðar er að borga skuldir. — Ég þakka þeim sem hlýddu.