132. löggjafarþing — 2. fundur,  4. okt. 2005.

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.

[21:37]
Hlusta

Ágúst Ólafur Ágústsson (Sf):

Frú forseti. Góðir Íslendingar. Stjórnmál snúast ekki einungis um hugsjónir heldur einnig um meðferð valds. Hvernig hefur sú meðferð komið okkur fyrir sjónir undanfarin ár hjá þessari ríkisstjórn? Nægir þar að nefna nokkur mál.

Við sáum fordæmalausan stuðning sem tveir menn ákváðu í okkar nafni við innrásina í Írak. Við sáum áður óþekktan hamagang í fjölmiðlamálinu, sem lauk með því að ráðherrar ætluðu að beygja sjálfa stjórnarskrána eftir eigin höfði. Við sáum skrúfað fyrir fjárframlög til Mannréttindaskrifstofu vegna gagnrýni hennar á stjórnvöld. Við sáum öryrkja sí og æ svikna um gefin loforð. Við höfum þurft að horfa upp á óeðlilegar skipanir á félögum þeirra í sjálfan Hæstarétt. Menn veigra sér ekki einu sinni við að hringja í umboðsmann Alþingis og skamma hann fyrir álit hans. Rauði þráðurinn er að þessi ríkisstjórn hefur verið of lengi við völd.

Frú forseti. Síðustu daga höfum við orðið vitni að ótrúlegri atburðarás sem leiddi til lögreglurannsóknar á Baugi. Í þeirri atburðarás tók innsti kjarni Sjálfstæðisflokksins virkan þátt, þar á meðal framkvæmdastjóri flokksins. Þessi flokkskjarni hittist og ræddi hvernig koma mætti til lögreglunnar máli yfirlýsts andstæðings þeirra, andstæðings sem ítrekað hefur orðið fyrir árásum formanns Sjálfstæðisflokksins. Nú síðast sagði meira að segja ráðherra í þessari ríkisstjórn, sjálfur viðskiptaráðherra, í Kastljósi, að áhrifamenn í Sjálfstæðisflokknum tengdust aðdraganda þessa máls, eins og hún orðaði það sjálf. Hún sagði að sér fyndist margt sérkennilegt hafa komið í ljós sem hún vissi ekki áður. Hún vakti sjálf athygli á ummælum eins þessara kappa um að það þyrfti e.t.v. að bíða eftir komu fjármálaráðherra til landsins upp á að senda málið til skattalögreglunnar. Þetta sagði sjálfur viðskiptaráðherra í vikunni. En í kvöld talar hún hins vegar á allt öðrum nótum og eins og allt sé í himnalagi.

Við mörgu í þessu máli þarf að fá skýr svör. Þetta snýst um meðferð valds. Samfylkingin mun leggja fram frumvarp um óháðar rannsóknir og rannsóknarnefndir eins og tíðkast víða í nágrannalöndum okkar. Þessar nefndir eiga að skoða mikilvæg mál eða stjórnvaldsathafnir sem varða almannahag og stuðla þannig að stjórnfestu og gegnsæi.

Frú forseti. Stjórnmál snúast einnig um stöðugleika. Það eru ekki síst stjórnarflokkarnir sem viðhalda mýtunni um stöðugleikann og þeir halda því áfram í kvöld. En það er ekki til marks um stöðugleika að búa við allt að 40% sveiflu á gengi íslensku krónunnar eða um 5% verðbólgu sem stefnir í ofanálag upp á við á næstu missirum samkvæmt spám. Það er hvorki stöðugleiki þegar skuldir heimilanna og fyrirtækjanna tvöfaldast á 5–7 árum eða þegar húsnæðisverð rýkur upp úr öllu valdi. Erlendar skuldir þjóðarbúsins eru á við þrefalda landsframleiðslu og heimilin skulda tíu sinnum meira en það sem kostar að reka allt heilbrigðiskerfið.

Það er ekki stöðugleiki þegar forsendur kjarasamninga bresta eða þegar árangurslaus fjárnám einstaklinga eru 17 þús. talsins á fjórum árum. Stöðugleiki felur ekki í sér að boða árlega fjárlagafrumvörp sem aldrei nokkurn tíma standast þegar reikningurinn er gerður upp. Það er ekki stöðugleiki þegar bilið á milli stétta og hópa í landinu margfaldast á örfáum árum. Það þýðir ekkert fyrir framsóknarmenn að hágrenja yfir þessum staðreyndum eins og síðasti ræðumaður þeirra gerði í kvöld.

Frú forseti. Samfylkingin vill bjóða upp á raunverulegan stöðugleika hagkerfis og fjölskyldna í landinu. Við viljum að allir fái tækifæri til menntunar en í fyrsta skipti í sögunni hafa Háskóli Íslands og fjölmargir framhaldsskólar hins vegar neyðst til að vísa nemendum frá vegna fjárskorts. Þetta nefndi forsætisráðherrann ekki í ræðu sinni í kvöld. Og nú berast fréttir af ályktunum ungra sjálfstæðismanna um að menntamál eigi ekki að fá neitt opinbert fjármagn. Er þetta stefnan sem Íslendingar vilja?

Samfylkingin vill stórauka fjárfestingu í menntamálum og gera leikskólann gjaldfrjálsan, sem yrði gríðarleg kjarabót fyrir íslensk heimili. Samfylkingin vill hlúa að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og ýta undir nýsköpun og frumkvöðlastarf. Samfylkingin mun hverfa frá vondri þróun á ýmsum sviðum samfélagsins. Af hverju þurfum við að búa við eitt hæsta matvælaverð í heimi? Af hverju þarf stöðugt að þrengja að hag eldri borgara þessa lands? Af hverju hefur fátækt meðal barna í okkar ríka samfélagi aukist?

Frú forseti. Íslendingar eiga skilið ríkisstjórn sem tryggir raunverulegan stöðugleika í samfélaginu, ríkisstjórn sem skilur ekki sumt fólk eftir, hvort sem það eru aldraðir, öryrkjar, stúdentar, hreyfihamlaðir eða börn. Við í Samfylkingunni boðum stefnu sem felur í sér að starfa fyrir opnum tjöldum þar sem stjórnfesta, frelsi og jafnræði ríkir í öllum ákvörðunum. — Góðar stundir.