Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana.
Frú forseti. Góðir Íslendingar. Hæstv. forsætisráðherra hefur nú flutt frábæra stefnuræðu sína. Hún var að vísu ekki alveg eins skemmtileg og ræða hv. þm. Halldórs Blöndals og ég ætla ekki að eyða tíma í að fara ofan í saumana á þessari stefnuræðu sérstaklega enda hafa margir gert það ágætlega á undan mér. Ég ætla heldur að tala um það sem vantaði sárlega í ræðuna.
Við búum í landi sem státar sig af því að lífskjör séu með þeim bestu sem gerast í heiminum, hvorki meira né minna. En í hverju felast þau lífsgæði? Felast þau í því að eiga sem flesta jeppa og bílastæði fyrir utan 400 fermetra einbýlishús? Eða eru raunveruleg lífsgæði þau að við getum andað að okkur hreinu lofti og að hér ríki jafnrétti, ekki bara í orði kveðnu? Að við berum umhyggju fyrir náunganum en séum ekki í sífelldu kapphlaupi um að hafa það „betra“ en hann. Eru lífsgæðin ekki fólgin í því að börnin okkar séu velkomin í þennan heim og að ekki taki á móti þeim auglýsingaflóð og skrum um hluti sem enginn þarf á að halda? Að gamla fólkið geti áhyggjulaust notið elliáranna. Grunnlífeyrir aldraðra á Íslandi í dag er um 20 þúsund kr. Er hægt að lifa af þeirri upphæð sem tekjulægstu ellilífeyrisþegunum og öryrkjum er skömmtuð? Er það með því móti sem við þökkum þeim sem hafa alið okkur upp? Auðvitað ekki. Það er skammarlegt hvernig við höfum látið lífeyrisþega sitja á hakanum meðan forstjórar landsins fá milljónir í mánaðarlaun. Það er kominn tími til að við jöfnum lífskjörin í landinu í stað þess að auka ójöfnuð eins og núverandi ríkisstjórn hefur gert og ætlar að halda áfram að gera með enn meira offorsi en hingað til. En það er hægt að gera hlutina á annan hátt.
Vinstri hreyfingin – grænt framboð er með tillögur um að lækka og fella niður fjármagnstekjuskatt hjá þeim sem lítið sparifé eiga en láta þá í staðinn bera byrðarnar sem eiga fúlgur fjár. Þeir geta vel borgað 18% fjármagnstekjuskatt án þess að finna mikið fyrir því. Þessi ráðstöfun er raunveruleg kjarabót fyrir þá sem minnst eiga og helst þurfa á skattalækkunum að halda.
Gjaldfrjáls leikskóli er annað dæmi um það sem við í Vinstri grænum leggjum áherslu á og sýnum með því móti að við höfnum skólagjöldum á öllum skólastigum.
Grunnheilbrigðiskerfið á einnig að vera gjaldfrjálst en í því mikla kerfi er hægt að spara háar fjárhæðir, t.d. með því að skoða lyfjakostnaðinn og leita nýrra leiða við að bæta heilsu þjóðarinnar.
Dæmi um óþarfa bruðl er framlag okkar í svokallaða „friðargæslu“. Þar ættum við í staðinn að styðja við alvöruþróunaraðstoð og hjálpa fátækasta fólkinu hvar sem er í heiminum svo að það geti hjálpað sér sjálft. Hvaða gagn komum við til með að gera í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna með eitt atkvæði sem mun kosta okkur 500–1.000 milljónir? Hingað til höfum við verið taglhnýtingar Bandaríkjastjórnar þegar kemur að utanríkisstefnu og sá stuðningur náði botninum í stuðningi Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar við ólöglegt árásarstríð gegn Írak, stríð sem virðist engan endi ætla að taka. Hér er við hæfi að vitna í þjóðskáldið Bubba Morthens:
Það fossar blóð í frelsarans slóð.
En faðir, það er vel meint.
Við Vinstri græn erum eini flokkurinn sem kennir sig við femínisma og við erum stolt af því og það er við hæfi á þessu mikla afmælisári kvennabaráttu að svipta hulunni af launaleyndinni. Með því móti og engu öðru getum við stuðlað að jöfnum launum karla og kvenna.
Góðir Íslendingar. Ég á mér draum um þjóðfélag þar sem raunveruleg lífsgæði eru í forgrunni en ekki gerviþarfir, þar sem réttlæti og jöfnuður ríkir en ekki misskipting og ójöfnuður. Þar sem borin er virðing fyrir öldruðum en þeir ekki afskrifaður þjóðfélagshópur. Þar sem börn eru boðin velkomin í heiminn. Þar sem frumkvæði og sköpunargleði fólks er virkjuð en ekki framin óafturkræf náttúruspjöll til að selja orkuna fyrir slikk til amerískra auðhringa. Það eru ef til vill einhverjir sem kalla mig draumóramann en ég er ekki sá eini. Og einn daginn munu fleiri ganga í lið með okkur og heimurinn verða sem einn. Verið þið velkomin í hópinn.