Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Herra forseti. Okkur, mér og forsætisráðherra, greinir á um skilgreininguna á fjarskiptum. Fjarskipti eru að mínu viti grunnþjónusta, ekki síst út um hinar dreifðu byggðir. Þær standa undir jafnrétti í búsetu, í atvinnulífi o.s.frv. Eitt af hlutverkum hins opinbera er að tryggja jafnréttið að því leyti.
Hæstv. ráðherra svaraði því ekki hvort honum fyndist eðlilegt og sjálfsagt, sem fyrstu viðbrögð nýs fyrirtækis, sem hann kallar svo, að loka starfsstöðvum í einu mesta dreifbýli á Íslandi á afskiptum stöðum, þar sem maður hefði heldur haldið að tryggja og bæta þyrfti þjónustuna. Voru ekki settar neinar kvaðir á fyrirtækið um að það sýndi samfélagslegan vilja, vilja til að taka þátt í samfélagsþjónustu í atvinnulífi á viðkomandi stöðum? Strax daginn eftir söluna ganga þeir svona fram. Er hæstv. ráðherra sáttur við þessa framkomu?