132. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[15:46]
Hlusta

Jón Bjarnason (Vg):

Frú forseti. Hér er til umræðu lagafrumvarp um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf. og hefur verið gumað af því í umræðunni hér á undan hversu gaman það er að taka eignir þjóðarinnar og selja þær og ráðstafa í hinar ýmsu áttir.

Það er mjög mikilvægt að við höldum því til haga, þó að búið sé að selja Landssímann, að fjarskiptin eru hornsteinn fyrir samkeppnishæfa búsetu og atvinnulíf um allt land. Það breytir engu um mikilvægi þessarar þjónustu að menn séu búnir að selja þetta í einkavætt fyrirtæki. Þegar stofnað var til fjarskiptakerfisins Símans hér á landi var lögð á það þung áhersla að þessi fjarskipti tengdust til allra landsmanna. Stöðugt hefur verið rætt um það, og að því hefur verið keppt, að landsmenn sætu við sem jafnastan hlut hvað fjarskiptaþjónustu varðar.

Þegar hæstv. ráðherrar koma hér og segja: Nú kemur þessi þjónusta okkur ekki lengur við vegna þess að nú er þetta komið í einkavætt fyrirtæki, finnst mér menn vera komnir býsna langt frá raunveruleikanum. Enda hefur það verið afstaða þjóðarinnar alveg til þessa dags að hún ætti að eiga grunnfjarskiptakerfi Landssímans.

Það sýndi sig í skoðanakönnun árið 2002 í miðri fyrri söluhrinu, eða aðförinni sem gerð var að Landssímanum þá, að mikill meiri hluti þjóðarinnar vildi að Landssíminn væri áfram í þjóðareign og ekki seldur. Í skoðanakönnunum sem gerðar voru á síðasta vetri í hinni seinni hrinu ríkisstjórnarinnar, hinni seinni aðför ríkisstjórnarinnar að þessari grunnalmannaþjónustu landsmanna sýndi sig að það var mikill meiri hluti. Í febrúar voru 70% þjóðarinnar, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups, andvíg sölunni. Í mars, í miðri umræðunni um það hvað margt væri nú hægt að gera fyrir þá peninga sem kæmu fyrir söluna, sýndi Gallup að 76% þjóðarinnar voru andvíg sölu á grunnfjarskiptakerfi landsmanna. Meira að segja í ágúst, september, eftir að salan hafði farið fram og loforðalistinn um ráðstöfun fjárins var kominn fram, gerði Gallup aftur könnun og þá var enn stærstur hluti aðspurðra þeirrar skoðunar að Landssíminn hefði átt að vera í eigu þjóðarinnar, þrátt fyrir loforðalistann. (Gripið fram í.) Ég bendi á að þá voru 40% aðspurðra á því að hann ætti að vera áfram í eign þjóðarinnar. (Gripið fram í.) Nei, hæstv. forseti, hjá þingmanninum Magnúsi Stefánssyni. Nei, 37 eða 38% voru hlynnt því að hann væri seldur. Þrátt fyrir loforðalistann var stærri hluti þjóðarinnar enn þá þeirrar skoðunar. Ég bið því menn að tala af virðingu um þessar eindregnu óskir þjóðarinnar sem voru þarna virtar að vettugi í einkavæðingaræði þessarar ríkisstjórnar sem engin takmörk eru á.

Menn eru ef til vill orðnir það veruleikafirrtir að þeir haldi að þó að samkeppni í fjarskiptum sé komin á hér á höfuðborgarsvæðinu og á Stór-Reykjavíkursvæðinu þá geti menn tryggt þjónustuna og allt sé bara gott um það að segja. En víða úti um land er hér orðið um nánast fullkomna einkavædda einokun að ræða í fjarskiptum eftir að Síminn var seldur.

Þessi sala hefur heldur ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Árið 2001 var reynt að selja Símann. Sem betur fer tókst það ekki. Þjóðin var mjög andvíg sölunni þá eins og hún er enn. En vegna þess að það tókst ekki að selja Símann hækkaði hann í verði í áætluðum tölum um milli 20 og 30 milljarða kr. Á sama tíma hefur hann líka greitt ríkissjóði 10, 11, 12 milljarða kr. í arð á þessu fjögurra ára tímabili. Síminn var því ekki neinn vandræðagepill í rekstri ríkisins, síður en svo. Það voru rúmir tveir milljarðar á ári þangað til nú síðasta árið. Þá voru teknir rúmir 4 milljarðar, 4,4 milljarðar, sem voru settir sérstaklega og aukalega út í arð (Gripið fram í.) … og höfuðstóllinn, það kemur þá niður í söluveðrinu, en þetta kom inn í fjármagni og ríkissjóð munaði auðvitað um það.

Allir sem hefðu haft eitthvert viðskiptavit hefðu nú talið að það væri réttara að ríkið ætti áfram þessa góðu eign og beitti síðan styrk hennar til þess að jafna og efla þjónustuna í fjarskiptum úti um allt land. En til þess bar þessi ríkisstjórn ekki gæfu, einkavæðingin og einkavæðingin er þeirra boðorð og almannaheill skal þá víkja þegar hagsmunir einkavæðingarinnar eru hafðir í fyrirrúmi.

Blekið var varla þornað á kaupsamningnum og varla búið að afhenda fyrirtækið þegar hin nýja stjórn greip til þeirra aðgerða sem allir segja að sé jú eðlilegt í einkavæddu fyrirtæki að hagræða.

Þjónustustöð á Blönduósi var lokað og ég leyfi mér, frú forseti, að vitna til þess hvernig bæjarstjórn Blönduóss upplifði einkavæðingardrauma ríkisstjórnarinnar sem þarna voru að rætast, með leyfi forseta:

„Bæjarstjórn Blönduóssbæjar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun nýrra eigenda Símans að leggja niður starfsstöðina á Blönduósi. Það hefur sýnt sig að næg verkefni eru fyrir hendi á svæðinu í fjarskiptamálum og lýsir bæjarstjórn yfir áhyggjum með að þjónustustig Símans á svæðinu versni og uppfylli ekki þær kröfur sem nútímasamfélag gerir. Bæjarstjórn skorar því hér með á stjórnendur Símans að ákvörðunin um lokun starfsstöðvarinnar verði endurskoðuð.

Jafnframt vill bæjarstjórn benda á að einkavæðing ríkisfyrirtækja hefur komið hvað verst niður á störfum á landsbyggðinni og krefur stjórnvöld um tafarlausar aðgerðir í atvinnumálum á svæðinu í samvinnu við heimamenn.“

Þetta var bara tveim dögum eftir — það var bara helgi á milli, annars hefði það farið fyrr — að gengið var frá sölunni. Áfram var haldið til Siglufjarðar. Siglufjörður hefur nú verið talinn sá staður þar sem menn ættu frekar að standa vörð um þjónustuna, ekki síst hvað varðar fjarskipti og öryggismál. Þar var starfsstöð Símans líka lokað tveim eða þrem dögum eftir að gengið var frá sölunni.

Bæjarstjórnin á Siglufirði mótmælir þessu einnig og segir, með leyfi forseta:

„Ljóst er að með aðgerðum þessum eru forsendur samnings sem Siglufjarðarkaupstaður hefur nýlega gert við Símann um þjónustu brostnar af hálfu kaupstaðarins.“

Í viðtali við forstjóra Símans var látið að því liggja að að sjálfsögðu yrði farið víðar um landið og leitað eftir hagræðingu. Maður veltir fyrir sér: Hefur svona fjarskiptaþjónusta engar samfélagslegar skyldur, engar staðbundnar samfélagslegar skyldur? Var ekki hægt að setja inn í sölusamninginn einhver ákvæði um að ekki mætti grípa til svona aðgerða, lokunar á starfsstöðvum, strax eftir að gengið hefði verið frá sölu? Ekkert samráð eða samband haft við heimamenn, ekki nokkurn skapaðan hlut? Getur það verið að fyrirtæki sem er búið að vera í eigu þjóðarinnar, almannaþjónustufyrirtæki, í nærri hundrað ár geti á einum degi skellt hurðum og sagt: Ég geri bara það sem mér sýnist, ykkur kemur það ekkert við, íbúar þessa lands, íbúar hinna dreifðu byggða?

Mér finnst þetta hart og ég verð að segja, frú forseti, að ég óttast þessa tegund af viðskiptaviti hjá hinum nýju eigendum Símans. Hvað er vitlausara en að byrja á því að ráðast að grunnþjónustu þessarar starfsemi eins og þarna var gert? Hvað boðar það? Það boðar að stjórn þessa nýja fyrirtækis, það verði ekki hennar að hafa áhyggjur af almannaþjónustu, þjónustustigi í fjarskiptum vítt og breitt um landið. Nei, það verður arðurinn, hámarksarðurinn. Hún hefur fengið þetta uppbyggða þjónustukerfi sem fjarskiptakerfið er í hendurnar og nú skal sækja arðinn. Það er þetta sem íbúar á Blönduósi og íbúar á Siglufirði og síðan víðar um land munu væntanlega reyna ef heldur fram sem horfir.

Ég hefði talið að ríkisstjórnin hefði átt að setja mun strangari reglur, kröfur um þjónustustig þessa fyrirtækis vítt og breitt um landið, bæði út frá öryggissjónarmiði og líka út frá þjónustusjónarmiði. Fólk, hvort sem er á Blönduósi eða Siglufirði, munar um það að verða að leita kannski um tugi hundruða kílómetra eftir þjónustu hvað varðar síma- og fjarskiptalagnir og búnað. Ef kerfið bilar munar það líka í öryggi hversu langt er að sækja viðgerðarþjónustu. Þess vegna hefði ég talið að setja hefði átt mun harðari og ákveðnari reglur þarna um áður en Síminn var seldur. Lög um Fjarskiptastofnun kveða ekki á um þetta þjónustustig, um viðbragðsflýti í viðgerðum. Það er hvergi kveðið á um það.

Það er líka áhyggjuefni, frú forseti, nú þegar verið er að tala um að verja fjármagni til eflingar fjarskiptamálum, þá er það áfram dregið til næstu ára. Við þingmenn í fjárlaganefnd höfum hér inni á borðum hjá okkur kröfur þar sem nánast hvert einasta sveitarfélag úti um land óskar þegar í stað eftir úrbótum í fjarskiptamálum, í GSM-málum, í að koma á háhraðaneti en samkvæmt þeim tillögum sem nú liggja fyrir um ráðstöfun fjárins á að draga það til næstu þriggja, fjögurra, fimm eða sex ára. Mér er spurn: Hvernig standast þessar tillögur um fjármagn til að efla fjarskiptakerfið við þá fjarskiptaáætlun sem við samþykktum í fyrra þar sem tímasett var hvenær ætti að vera búið að ljúka við GSM-kerfið á aðalþjóðvegum landsins og helstu stofnbrautum? Var það ekki árið 2006? Var það ekki líka árið 2006 sem háhraðanet átti að vera komið á allra þéttbýlustu staðina? Ég er ekki búinn að sjá að þetta verði samkvæmt þessum tillögum sem hér er um að ræða, frú forseti.

Varðandi önnur verkefni sem verið er að ráðstafa fjármagni til er það svo sem gott og blessað og allt saman þörf verkefni þó að menn geti velt fyrir sér forgangsröðun og öðru því um líku. Enda væri það nú annað hvort. En meginmál í þessu sambandi er að tryggja fjarskiptakerfi landsins og það tel ég að sé fyrir borð borið með sölu á Símanum með þeim hætti sem hér er gert, án þess að það hafi verið settar mun harðari og mun strangari kröfur um þjónustustig, um viðbragðsflýti og öryggi í fjarskiptum um allt land sem við höfum haft að leiðarljósi í uppbyggingu fjarskiptakerfisins til þessa en virðast nú litlu máli skipta.