Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Hæstv. forseti. Varðandi söluna á Símanum og þá fjármuni sem út úr því koma, getur hv. þm. Jón Bjarnason ekki verið ánægður með að geta nýtt þá t.d. í að byggja upp vegi á Barðaströnd, um Arnkötludal og Þverárfjall, styrkt Landhelgisgæsluna, styrkt stöðu geðfatlaðra og með þessu öllu saman skapað aukið svigrúm í fjárlögum næstu ára m.a. til velferðarmála o.s.frv.? Það er auðvitað alveg ljóst ef málið er skoðað í heild að með sölunni á Símanum skapast miklu meiri arður af fjármagninu en verið hefur því Síminn hefur verið að greiða ríkissjóði um 2–3 milljarða á ári í arð. Við sjáum því fram á miklu meiri arðsemi af því fjármagni sem hefur verið bundið í Símanum heldur en áður og ég spyr bara: Getur hv. þingmaður ekki verið mjög ánægður með þessa stöðu mála vegna þess að það er framþróun í fjarskiptaþjónustu og við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að hún verði verri en verið hefur? Hún verður mun betri í framtíðinni þannig að ég spyr bara hv. þingmann þessarar einföldu spurningar.