Athugasemd.
Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins vegna alvarlegs ástands í lyfjamálum hér á landi. Skortur á lyfjum, jafnvel lífsnauðsynlegum lyfjum, hefur verið í landinu um nokkurt skeið. Sykursýkislyf, skjaldkirtilslyf og krabbameinslyf fyrir börn hefur skort og það hefur þurft að panta þau með hraði til landsins. Við heyrum fréttir eins og þessar: „Krabbameinslyf barna var ófáanlegt“ og „Í lífshættu vegna lyfjaskorts“. Þar er verið að tala um sjúkling með skerta virkni í skjaldkirtli. Fólk er í lífshættu vegna þess að ekki eru til rétt lyf. Aðrir sjúklingar þurfa að líða miklar þjáningar vegna þessa ástands að sögn lækna sem ég hef verið í sambandi við. Kvartanir berast til landlæknis í sambandi við þetta ástand.
Samkvæmt lyfjalögum, þ.e. 33. gr., er lyfjaheildsölum skylt að eiga nægar birgðir af tilteknum nauðsynlegum lyfjum sem veitt hefur verið markaðsleyfi fyrir. Með þessu ástandi er verið að brjóta lyfjalögin. Ég spyr, virðulegi forseti: Hvernig hyggst hæstv. heilbrigðisráðherra bregðast við? Mun hann koma með lagabreytingu? Mun hann skerpa á þessum ákvæðum? Aðstoðarlandlæknir segir að ákvæðið sé óljóst og ég tek undir það.
Það er kvartað yfir ýmsu fleiru í lyfjamálunum. Innflytjendur eru hættir að flytja inn algeng lyf og í staðinn koma dýrari ný lyf þó að hin algengu séu ekkert síðri og jafnvel betri. Hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast við þessu ástandi? Við þetta verður ekki unað.
Ég vil einnig spyrja hæstv. ráðherra hvort það veki ekki áhyggjur hjá honum að fyrirtæki eru hætt að sækja um markaðsleyfi vegna þess að markaðurinn hér er svo lítill.
Virðulegi forseti. Það er mjög brýnt að við þessu verði brugðist fljótt og gripið verði til aðgerða á þinginu.