132. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2005.

Athugasemd.

[10:36]
Hlusta

Ásta Möller (S):

Virðulegi forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur að skortur á lífsnauðsynlegum lyfjum er alvarlegt mál. Ég hef fullvissu fyrir því að hlutaðeigandi aðilar geri sér fullkomlega grein fyrir því að í ákveðnum tilvikum hafi orðið um mistök að ræða. En það sem skiptir mestu máli í þessu sambandi er að þeir bregðist við því og það hafa þeir þegar gert eins og hæstv. ráðherra hefur greint frá, þ.e. að þeir munu bregðast við því og hafa beðið um fund með lyfjayfirvöldum, með landlækni þannig að þetta komi ekki fyrir aftur.

Ég bendi á að miklar kröfur eru gerðar til innflutningsaðila lyfja og ég tel rétt að þessar miklu kröfur séu gerðar. En mestu máli skiptir að þeir geri sér grein fyrir ábyrgð sinni og ég tel að þeir geri það í þessu máli með því að bregðast við á þann máta að þetta muni ekki gerast aftur.