132. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[12:42]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég kem eingöngu upp til þess að gefa hv. þingmanni kost á að koma aftur vegna þess að ég verð að segja eins og er að mér finnst það ekki trúverðug svör sem hann kemur hér með. Ég vil gjarnan heyra hann gefa álit sitt á því hvort Vinstri hreyfingin – grænt framboð telji að það þurfi aukið aðhald í útgjöldum ríkissjóðs. Það kom ekkert fram um það.

Þetta tal um að gefa eigi yfirlýsingar um að ekki verði farið í frekari stóriðjuframkvæmdir einhvern tíma í framtíðinni er í sjálfu sér ekkert innlegg í þessa umræðu að mínu mati. En ég vil gefa hv. þingmanni kost á að koma hér aftur ef hann hefur frekari svör.