132. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[15:56]
Hlusta

Katrín Júlíusdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Stöðugleiki ríkir í efnahagsmálum er klisja sem hefur dunið yfir frá ríkisstjórninni árum saman og hefur líka dunið yfir frá ríkisstjórninni í þessari umræðu ef frá er talinn hv. þm. Bjarni Benediktsson sem talaði hér á undan mér og fagna ég því að hann sé töluvert jarðbundnari en margur annar.

Meira að segja núna segir ríkisstjórnin að stöðugleiki sé þegar viðskiptahallinn er 13,3% sem er sögulegt hámark frá stríðslokum. Stýrivextir Seðlabankans eru komnir yfir 10%. Greiningardeildir bankanna spá allt að 8% verðbólgu og að fram undan sé skarpt gengissig jafnvel upp á 15–25%. Skuldir heimila og ekki síður fyrirtækja hrannast upp. Forsendur kjarasamninga eru að bresta, eins og við höfum heyrt frá verkalýðshreyfingunni á undanförnum dögum, og útflutningsgreinarnar eru í miklum vanda. Þetta kýs hæstv. ríkisstjórn að kalla stöðugleika og loka eyrunum fyrir viðvörunum sem blasa við alls staðar í þjóðarbúskapnum.

Ef skoðuð eru einföld línurit af stöðunni og yfir þennan mikla stöðugleika, sem ríkisstjórnin kallar svo, bara frá árinu 2000 þá verða orð hæstv. ríkisstjórnar um stöðugleika vægast sagt kómísk. Línuritið yfir gengisvísitöluna lítur út um það bil eins og Mont Blanc fjallgarðurinn. Gengisvísitalan tók flugið á árinu 2000 frá 110 stigum og hefur rokið upp í tindinn í tæplega 150 stig í lok árs 2001 og hefur með sveiflum hrapað niður í 103–104 stig sem krónan liggur núna í. Er þetta stöðugleikinn, hæstv. ríkisstjórn?

Línuritið yfir stýrivexti Seðlabankans minnir helst á hjólabrettapall. Léttir pallar upp og niður til að byrja með, smáupphitun, en með vöxtum frá 9% í 5,5% og síðan tekur hjólabrettakappinn tilhlaupið upp og upp í Skaftárbrekku fyrir lokastökkið í 10,7% vexti sem nú eru eftir síðustu vaxtahækkun Seðlabankans. Er þetta stöðugleikinn, spyr ég, hæstv. ríkisstjórn?

Línuritið yfir skuldir heimilanna er reyndar öllu einfaldara. Það er bara eins og vangasvipurinn á Holmenkollen, skíðastökkpallinum fræga. Það sama má segja um fyrirtækin nema pallurinn er heldur brattari þar og hafa skuldir fyrirtækja í landinu meira en tvöfaldast frá árinu 2000. Er þetta stöðugleikinn? Maður verður að spyrja sig. Bábiljan um stöðugleikann er bara ekki trúverðug þegar þetta er skoðað svart á hvítu. Ríkisstjórnin er ein um að halda að hér ríki stöðugleiki.

Virðulegi forseti. Undanfarin ár hefur ríkissjóður bólgnað út og útgjöld ríkisins snaraukist og verða á næsta ári samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi 313 milljarðar, sem er 12 milljarða hækkun frá árinu í fyrra á verðlagi þess árs. Samkvæmt þessu fjárlagafrumvarpi er áætlað að tekjur ríkissjóðs verði 895 milljónir á dag alla daga vikunnar og yfir hátíðir. Því svíður manni að sjá yfirlit ríkisstjórnarinnar í þessu fjárlagafrumvarpi yfir lagabreytingar sem miðað er við í forsendum frumvarpsins. Á síðu 451 í frumvarpinu er yfirlit yfir þær lagabreytingar sem ríkisstjórnin hyggst ráðast í til að áform frumvarpsins nái fram að ganga eins og þar segir. Í þessu yfirliti eru einungis tvær breytingar vegna gjaldahliða frumvarpsins og hverjar eru þær? Jú, á þessu metári ríkisútgjalda á að kroppa fjármuni af þeim sem allra síst skyldi, nefnilega hreyfihömluðum og skuldugu fólki. Einu lagabreytingunum sem gera þarf til að áform ríkisstjórnarinnar í frumvarpinu nái fram að ganga á að beina gegn þessum tveimur hópum.

Af hreyfihömluðum á að kroppa bensínstyrk sem er forsenda þess hjá mörgum að þeir geti stundað vinnu og tekið þátt í samfélaginu.

Af þeim sem skulda mikið í íbúðum sínum og bera þunga vaxtabyrði, sem er að langstærstum hluta til ungt fólk sem er að koma sér upp þaki yfir höfuð, á að kroppa í vaxtabæturnar.

Virðulegi forseti. Þetta finnst mér rangt að gera. Þetta er ofsalega óréttlátt. Fjárlagafrumvarpið er stefnumarkandi plagg. Það er því stefna ríkisstjórnarinnar að á næsta ári skuli kroppa aurana af hreyfihömluðu fólki og unga fólkinu með húsnæðisskuldirnar. Þannig ætlar ríkisstjórnin að mæta hagræðingarkröfunni eins og hún er kölluð. Ég hefði haldið að hagræðing þýddi að skera niður óþarfa lúxus, eða eins og hv. þm. Einar Oddur Kristjánsson orðaði hérna áðan, svona ákveðið fitulag. Ég verð því að spyrja: Telur núverandi ríkisstjórn að bensínstyrkur til hreyfihamlaðra sé lúxus eða óþarfa fitulag? Telur ríkisstjórnin að vaxtabætur vegna húsnæðiskaupa nú á tímum uppsprengds húsnæðisverðs sé lúxus á venjulegum íslenskum heimilum barnafjölskyldna? Við í Samfylkingunni teljum svo ekki vera. Munurinn á forgangsröðun Samfylkingarinnar og núverandi ríkisstjórnar kristallast í þessu máli og er alveg skýr.

Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra hefur verið tíðrætt um stöðu fjölskyldunnar í landinu, nú síðast í stefnuræðu hér á Alþingi síðasta þriðjudagskvöld. Ég fagna þeirri auknu umræðu um málefni barnafjölskyldna. Einmitt þess vegna skil ég ekki hvers vegna á að kroppa í vaxtabætur ungra barnafjölskyldna og skerða þær annað árið í röð. Meinar hæstv. forsætisráðherra ekkert með orðum sínum þegar hann boðar fjölskylduvænt samfélag?

Á barnafjölskyldum hvíla miklar byrðar. Þar vegur þungt hátt matvælaverð, skólagjöld í leikskóla, gjöld fyrir dagvistun yngri barna í grunnskólum, hár læknakostnaður og þá ekki síst tannlæknakostnaður og ekki síst núna himinhár húsnæðiskostnaður. Daglegur rekstur heimilanna og ekki síst þeirra sem börn búa á er afar kostnaðarsamur í samfélagi okkar og hefur hækkað mikið undanfarin ár.

Virðulegi forseti. Annað árið í röð á að skerða vaxtabætur til þeirra sem standa í húsnæðiskaupum með því að breyta lögum þannig að greiddar vaxtabætur skuli nema 95% af útreiknuðum bótum, eða eins og segir í texta fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2006, á bls. 391, með leyfi forseta:

„Við breytingar á vaxtabótum á síðasta ári var miðað við að vaxtabætur við álagningu ársins 2005 yrðu 95% af því sem gildandi reglur skv. b-lið 68 gr. laga nr. 90/2003 kveða á um. Ákveðið hefur verið að framlengja þá ráðstöfun í samræmi við áform um aðhald með útgjöldum ríkissjóðs.“

Virðulegi forseti. Þetta er aðhald hæstv. ríkisstjórnar. Eða er þetta kannski fjölskyldustefna hæstv. forsætisráðherra? Maður hlýtur að spyrja sig þeirrar spurningar þegar einungis þessar tvær aðgerðir eru settar sem forsendur frumvarpsins.

Nú þegar húsnæðisverð hefur rokið upp og skuldir ungra barnafjölskyldna vegna húsnæðiskaupa hafa aukist að sama skapi ætlar ríkisstjórnin, sem boðar fjölskyldustefnuna, að kroppa í vaxtabæturnar. Við vitum að einmitt á ungum barnafjölskyldum hvílir þyngsta vaxtabyrðin vegna húsnæðiskaupa. Við vitum líka að skuldir ungs fólks eru að stærstum hluta vegna húsnæðiskaupa.

Í svari við fyrirspurn Helga Hjörvars til ráðherra um skuldir eftir aldri, sem lögð var fram á 131. löggjafarþingi, kom nákvæmlega þetta fram, að árið 2003 var hlutfall húsnæðisskulda fólks á aldrinum 21–45 ára 75% af heildarskuldum vegna húsnæðis. Það þarf varla að taka fram að hlutfallið var hærra eftir því sem yngra fólk er. Þetta unga fólk er ekkert að bruðla eða taka óþörf lán eins og hér hefur verið gefið í skyn af hv. þingmönnum ríkisstjórnarinnar. Það er einfaldlega að koma sér og fjölskyldu sinni upp þaki yfir höfuðið, ekki eru flóknari hlutir á ferðinni en svo. Ef ungar barnafjölskyldur hafa einhvern tíma þurft fullar vaxtabætur þá er það nú í þessari stöðu. Mér finnst það því vond ákvörðun hjá ríkisstjórninni að lækka vaxtabæturnar og Samfylkingin er henni algjörlega ósammála. Vaxtabæturnar eru tæki til þess að koma til móts við ungar barnafjölskyldur sem ríkisstjórnin á að nota ef hún meinar eitthvað með því að hér eigi að vera stefna sem er barnafjölskyldum landsins í hag.

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir ofsalegum vonbrigðum með þetta vegna þess að mér finnst það lýsa hugarfari sem að mínu mati er algjörlega óþolandi, að þegar á að leita að einhverjum krónum til að kroppa í þá skal fara þangað sem síst er von á mótmælum. Ungu barnafjölskyldurnar hafa ekki enn myndað með sér samtök en ég tel að tími sé til kominn til að svo verði gert vegna þess að það þarf svo sannarlega að verja hag þeirra í samfélaginu. Skattalækkanirnar komu þeim ekki til góða, langstærstum hópi kom það ekki til góða. Barnabæturnar sem voru teknar af þeim og mun verða skilað til baka á næsta ári munu gera eitthvað en ekki nándar nærri nóg. Því eigum við að nota öll þessi tæki sem við höfum til að koma til móts við barnafjölskylduna, barnabæturnar, vaxtabæturnar, skattkerfið til að bæta hag þeirra, ekki að skerða vaxtabæturnar með þeim hætti sem nú er gert þegar húsnæðisverð er upp úr öllu valdi.