132. löggjafarþing — 4. fundur,  6. okt. 2005.

Fjárlög 2006.

1. mál
[16:10]
Hlusta

Birkir Jón Jónsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það er afstætt hvað eru há laun og hvað eru lág laun. En það er staðreyndin að ungt menntað fólk er yfirleitt með meðaltekjur eða vel það. En þetta fólk er að koma yfir sig mjög dýru húsnæði eins og gefur að skilja.

Hv. þingmaður segir að Samfylkingin hafi ekki verið fylgjandi því að lækka tekjuskattsprósentuna um 1% á síðasta ári. Af hverju í ósköpunum greiddi þá Samfylkingin ekki atkvæði á móti því? Hvers lags tvískinnungur er þetta? Samfylkingin var ekki á móti því að lækka tekjuskattsprósentuna í fyrra, hv. þingmaður getur ekki komið hér upp og sagt slíka hluti.

Við erum líka að stórhækka barnabætur, um 2,4 milljarða, sem mun koma sérstaklega lágtekju- og millitekjufólki til góða, því er ekki eingöngu verið að hampa hátekjufólki eins og hv. þingmenn Samfylkingarinnar gefa í skyn. En við megum heldur ekki reka þannig skattastefnu að það sé letjandi fyrir fólk að hafa há laun, að það sé letjandi fyrir fólk að vera duglegt og vinna. Ég vil ekki lifa í slíku þjóðfélagi. Við eigum að skapa því fólki sem fer utan í mjög dýrt nám þær aðstæður að það geti flutt hingað heim og rekið heimili sitt með sóma. Ég veit ekki í hvaða umhverfi hv. þm. Katrín Júlíusdóttir lifir en ég þekki mörg heimili þar sem ungt fólk er með meðaltekjur og það berst í bökkum. Þetta fólk fær ekki fullar vaxtabætur ef það er með rúmlega meðaltekjur og það fær ekki fullar barnabætur. Hvernig ætlar Samfylkingin að koma til móts við það fólk? Það er ósköp eðlilegt að spurt sé.

Málflutningur Samfylkingarinnar almennt — hún hefur boðað það að hún ætli að afnema stimpilgjald, lækka matarskatt, gera leikskólann gjaldfrjálsan, þetta eru orðnar tillögur upp á 15 eða 20 milljarða, stórhækka skattleysismörkin. Hvar endar þessi stefna Samfylkingarinnar? Hvar endar Samfylkingin?