Fjárlög 2006.
Herra forseti. Það var svo sem ekkert í grundvallaratriðum rangt við þessar útleggingar hv. þingmanns á því hvernig vextirnir, gengið og verðlagið spilar saman og eftirspurnin eftir krónunni nema að því leyti til að stóriðjan er ekki orsakavaldur nema að hluta til á þeirri eftirspurn sem við sjáum í dag. Hins vegar verðum við líka að horfa til þess að þegar stóriðjuframkvæmdunum lýkur og stóriðjan fer að framleiða og flytja út þá munum við fá arðinn og hagnaðinn í útflutningnum (JBjarn: Hverjar verða skuldirnar?) og þá breytist auðvitað jafnan og viðskiptajöfnuðurinn verður hagstæðari okkur svo um munar og ekki mun okkur þá veita af, sérstaklega ef búið verður að taka ákvörðun um sjö mögur ár á vegum Vinstri grænna. En það er sennilega bara hv. þingmönnum Vinstri grænna sem finnst að ég sé að hóta þeim meiri stóriðju því ég hef ekki vald til að geta tekið slíkar ákvarðanir jafnvel þótt ég hafi vilja til að það verði meiri stóriðja hér á landi, því það eru auðvitað þeir sem byggja orkuverin og verksmiðjurnar sem ráða því endanlega. En ég tel að við þurfum á frekari uppbyggingu á orkufrekum iðnaði að halda í framtíðinni til þess að geta staðið undir þeim lífskjörum sem við viljum bjóða íslenskri þjóð í framtíðinni.