Fjárlög 2006.
Hæstv. forseti. Það hefur verið farið vítt yfir sviðið í umræðunni. Það sem stendur upp úr í mínum huga eru þær ásakanir sem bornar eru á ríkisstjórnina að efnahagsstefnan og hagstjórnin skapi samfélag fyrir hátekjufólk og í því kapphlaupi gleymist að það er fleira fólk í þessu samfélagi sem ríkisstjórnin þarf að huga að. Það er fleira fólk í þessu samfélagi sem ríkisstjórnin hefur skyldum að gegna við. Skyldum sem hún sinnir ekki.
Það hefur verið haft hér á orði að Ísland sé að verða paradís fyrir hátekjufólk með skattastefnu ríkisstjórnarinnar þar sem milljarðar og milljarðatugir á hverju ári eru í raun og veru afþakkaðir inn í sameiginlega sjóði landsmanna, inn í þá sjóði sem eiga að standa straum af kostnaði við velferðarkerfið, sjóði sem eiga að standa straum af því sem það kostar að fólk geti borið höfuðið hátt og lifað mannsæmandi lífi.
Mig langar til að vitna hér til orða Íslendings sem lét í sér heyra í Tímariti SFR fyrir skemmstu. Gróa Salvarsdóttir er fyrrverandi formaður lífeyrisþegadeildar SFR, en hún var fyrir skömmu að hætta afskiptum af félagsmálum eftir 70 ára dygga og öfluga þátttöku. Gróa sendir ríkisstjórninni tóninn í viðtali í þessu blaði sem ríkisstjórnin þarf að hlusta á. Hún talar um stjórnvöld sem setji verkalýðshreyfingunni og verkalýðsfélögunum sífellt stólinn fyrir dyrnar með því að koma í veg fyrir ýmis framfaramál sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir að nái fram að ganga.
Hún segir, með leyfi forseta:
„Stjórnvöld og atvinnurekendur skammta launafólki skít úr hnefa vegna þess að þessir aðilar virðast ekki gera sér grein fyrir því hvað fólkið í landinu þarf til að geta staðið á eigin fótum og lifað mannsæmandi lífi.“
Þetta er mergurinn málsins, virðulegi forseti. Þegar stefna stjórnvalda í skattamálum er skoðuð og einnig launastefnan sjáum við að þeim er að mistakast með velferðarkerfið. Lífeyrisþegar eru að greiða skatta, öryrkjar eru að greiða skatta. Það er verið að taka bensínstyrk af öryrkjum. Hvenær á þessu að linna? Hvenær ætlar ríkisstjórnin að gera sér grein fyrir því að þessi stefna stefnir okkur í verulegan voða?
Við, þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, höfum verið að benda á þessi hættumerki og höfum reifað tillögur um aðgerðir til að endurheimta efnahagslegan stöðugleika. Við höfum haldið því fram að hér séu stjórnmálamenn sem geri sér grein fyrir afleiðingunum af skattastefnu ríkisstjórnarinnar og stefnunni í hagstjórninni en sá söngur heyrist eilíflega frá stjórnarliðum að gagnrýni stjórnarandstöðunnar sé marklaus. Það er ekki rétt. Stjórnarandstaðan setur fram efnismikla gagnrýni og mjög alvarlega, gagnrýni sem byggist á því að ekki sé bara tyllt undir þá sem hæst standa heldur ekki síður þá sem hafa borið þetta þjóðfélag uppi í áranna rás, t.d. eldri borgara þessa lands.
Hæstv. heilbrigðisráðherra keyrir þá stefnu að eldri borgarar og eldra fólk eigi að fá að vera heima hjá sér sem lengst, að allt eigi að gera sem hægt er til þess að fólk geti dvalið lengur inni á heimilunum. Ekki eigi að koma eldra fólki inn á stofnun um leið og einhver aðstoð þarf að koma til. En þá spyr ég: Hverjir eiga að aðstoða eldra fólkið? Það fæst ekkert fólk í heimahjúkrun. Þeir sem fást í heimahjúkrun vilja vera á einkareknu heimili fyrir eldri borgara af því að einkarekna heimilið getur í skjóli ríkisvaldsins greitt þessu fólki hærri laun. Þetta er hluti af stefnu stjórnvalda, þetta er ein af birtingarmyndum þeirrar stefnu sem verið er að gagnrýna hástöfum þegar fjárlagafrumvarpið er til umræðu.
Segi menn svo að gagnrýni stjórnarandstöðunnar sé efnisrýr og bragðlítil. Það er ekki rétt, ég vísa því til föðurhúsanna. Það er ekkert réttlæti í því að koma svona fram við það fólk sem ber ekki meira úr býtum en lífeyrisþegar og öryrkjar gera. Það ber vott um verulega skammsýni hjá ríkisstjórninni og ég vona sannarlega að henni verði refsað fyrir það í næstu kosningum. Ég trúi ekki öðru en langlundargerð þjóðarinnar sé á þrotum.
Hæstv. forseti. Það er ekki langur tími eftir af ræðu minni. Mig langaði til að nefna hér nokkur atriði í fjárlagafrumvarpinu, sem ég var reyndar farin að ýja að í fyrri ræðu minni. Þá var ég fyrst og fremst að huga að menntamálunum, einum af þeim málaflokkum sem ég hef reynt að sinna í störfum mínum sem þingmaður. Ég fagna hækkuðum framlögum samkvæmt fjárlagafrumvarpinu til háskólastigsins en gagnrýni jafnframt ákveðna þætti í þeim efnum. Ég gagnrýni þá áherslu sem er á einkaskólana og sú áhersla er á kostnað hinna opinberu háskóla eins og t.d. Kennaraháskóla Íslands sem, eins og ég sagði áðan, hefur verið að synja u.þ.b. þúsund umsækjendum um skólavist á hverju ári núna undangengin ár. Ég sé ekki að samkvæmt þessu frumvarpi geti orðið nokkur breyting þar á. Þetta er grafalvarlegt þegar við horfum til þess að okkur sárvantar menntaða kennara. Okkur sárvantar menntaða kennara í leikskólana og inn í fullorðinsfræðsluna til dæmis.
Lítum þá aðeins á stöðuna hjá Háskóla Íslands. Það kemur fram í fjárlagafrumvarpinu að Háskóli Íslands sé að fá hækkun og því ber að fagna, hækkunin er þó nokkur. En henni er fyrst og fremst ætlað að taka á tilteknum vandamálum sem Háskóli Íslands hefur átt við að stríða undanfarin ár og varða grunnnámið í skólanum. Hækkuninni til Háskóla Íslands er í fyrsta lagi ætlað að koma til móts við fjölgun nemenda, en við vitum að undanfarið hafa einhver hundruð nemenda verið í námi í skólanum án þess að nokkur greiðsla hafi komið frá hinu opinbera. Nú er verið að leiðrétta það og er það vel. Samt sem áður er leiðréttingin einungis til hálfs eða að hluta, skrefið er ekki stigið til fulls. Maður hlýtur að spyrja sig: Úr því að verið er að leiðrétta augljóst misrétti, hvers vegna er skrefið þá ekki stigið til fulls? Hvert er svarið við því?
Í öðru lagi er hækkuninni til Háskóla Íslands ætlað að leiðrétta ákveðið misræmi sem hefur myndast á milli opinberra framlaga vegna launa og raunverulegra launagreiðslna. Um árabil hefur Háskóli Íslands verið að vekja athygli menntamálanefndar Alþingis á þessu misræmi en því miður hefur háskólafólk talað fyrir daufum eyrum þar til núna. Þess vegna er það ánægjuefni að nú skuli loksins ætlað fé í þessar launaleiðréttingar. En eins og ég sagði rétt áðan, hæstv. forseti, þá eru þessar leiðréttingar fyrst og fremst vegna grunnnáms við skólann. Háskóli Íslands hefur hins vegar verið að byggja upp öflugt doktorsnám og talið að það þarfnaðist viðurkenningar frá stjórnvöldum.
Til þess að Háskóli Íslands geti gert tilkall til þess að vera kallaður rannsóknarháskóli í fremstu röð þarf hann að efla doktorsnámið til mikilla muna. Hann þarf að fjölga doktorsnemum en það kostar umtalsverða fjármuni. Nú er reyndar verið að hækka framlögin til samkeppnissjóðanna sem doktorsnemar geta sótt um laun í, og það er gott, en skólinn ber líka ákveðinn grunnkostnað af doktorsnemunum. Þetta þurfa stjórnvöld og við í menntamálanefnd Alþingis að skoða núna þegar fjárlagafrumvarpið kemur inn til umfjöllunar. Við verðum að sjá til þess að Háskóli Íslands fái þetta viðurkennt. Háskóli Íslands er að mennta doktorsnema en hann gæti gert svo miklu, miklu meira af því ef hann fengi örlitla viðurkenningu frá okkur sem förum með fjármál ríkisins.
Hækkunin til rannsóknarþáttar Háskóla Íslands er upp á 20 milljónir og hún er mjög afmörkuð. Hún er eingöngu hugsuð til þess að greiða þeim greinum sem háskólinn er nú að taka við frá Tækniháskólanum sem var lagður niður fyrr á þessu ári. Þetta eru tvær greinar, geislatækni og lífeindatækni, og þessar 20 milljónir eru ætlaðar til að efna samkomulag sem menntamálaráðuneytið var búið að gera við Tækniháskólann áður en hann var lagður niður. Menn verða því að hafa í huga að hér er ekki um að ræða hækkað framlag til þeirra rannsókna sem hafa verið stundaðar í Háskóla Íslands.
Ég hefði gjarnan viljað fara nánar út í ákveðin atriði en læt nægja í lokaorðum mínum að nefna Mannréttindaskrifstofu Íslands. (Forseti hringir.) Hvers vegna eru (Forseti hringir.) framlög til Mannréttindaskrifstofunnar ekki leiðrétt í þessu fjárlagafrumvarpi?