Fjárlög 2006.
Virðulegi forseti. Ég stend við það sem ég sagði áðan. Ég skal ekki nákvæmlega segja til um hvort einhver ríkisfyrirtæki eru inni í þessu, ég hef ekki þau gögn. En ég veit þetta: við seldum Símann og þegar við tölum um skuldir ríkisins erum við að tala um nettóskuldir. Ríkissjóður á mjög miklar inneignir í Seðlabankanum í dag. Hann á líklega um, og ætlast er til að hann eigi um áramótin kringum 50 milljarða. Þar af hefur þegar verið ákveðið að setja rúmar 30 þeirra á skuldabréf, 20 milljarðar eru þar fyrir utan. Þegar við tölum um skuldir ríkisins eða nettóskuldirnar, eru nettóskuldir íslenska ríkisins í dag einhvers staðar í kringum 100 milljarðar.
Ef ég fer aftur yfir þetta þá er inneign gjaldeyrisins dregin frá. Þetta er alþjóðlegur samanburður og þetta er staðan. Ég fullyrði að íslenska ríkið stendur í dag betur en allar aðrar þjóðir Vestur-Evrópu að Sviss og Noregi undanskildum, þetta eru tölurnar. Ef til vill eru einhverjir hnökrar á þessu, t.d. ef einhver ríkisfyrirtæki eru inni í þessu, ég átta mig ekki alveg á því, en þetta eru tölurnar og þannig stöndum við í dag og við skulum fagna því þar sem þetta gefur okkur hin miklu sóknartækifæri framtíðarinnar.