132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Lækkun matarskatts.

[15:53]
Hlusta

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Ég verð að játa að mér finnst það ekki sæma hæstv. fjármálaráðherra að vera með svona útúrsnúning og hótfyndni í pontunni þegar við erum að ræða skattamál. Samfylkingin hefur sett fram þá stefnu að það beri að fara í lækkun á matarskattinum í stað þess að fara í lækkun á tekjuskattinum. Okkar afstaða í því máli liggur alveg ljós fyrir.

Hæstv. fjármálaráðherra sagði í pontu áðan að hann væri ekki tilbúinn að fara þá leið og þá spurði ég einfaldlega: Vill hann fara einhverja aðra leið til að ná fram þessu máli sem víðtæk sátt er um í samfélaginu og á þinginu? Ráðherrann hefur ekki svarað því og segir að nægur tími sé enn eftir af kjörtímabilinu. Ef það gerist ekki núna verður það að gerast næst. Það er engum öðrum tímapunktum til að dreifa.

Ég hygg, virðulegur forseti, að það geti vafist fyrir mönnum með þær skattalækkunartillögur og hugmyndir sem uppi eru að ári í tekjuskattinum að fara þá jafnhliða í lækkun á matarskatti ef það vefst fyrir mönnum á þessu ári.