Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Frú forseti. Hæstv. ráðherra sagðist ekki ætla að dvelja við fortíðina í þessu máli og horfa bara til framtíðar og það er nú rétt hjá hæstv. ráðherra.
Ég ætla hins vegar aðeins að leyfa mér að horfa aftur í tímann, um leið og ég óska honum til hamingju með þann áfanga sem felst í því að menn ætla nú að ráðast í byggingu nýs hátæknisjúkrahúss. Ég rifja það upp að sá sem fyrstur hóf máls á því var einmitt hv. þm. Kristján L. Möller. Það var Kristján L. Möller sem tók það mál upp og ruddi því brautina á opinberum vettvangi með grein í Morgunblaðinu og með því að leggja fram þingsályktunartillögu sem nokkrir þingmenn Samfylkingarinnar fluttu. Ég er alveg nógu stór til að koma hingað og segja: Þetta er mikilvægur áfangi og, eins og ég gerði hér áðan í máli mínu, að óska hæstv. ráðherra til hamingju með þetta. En væri ekki bragur að því, frú forseti, ef hæstv. ráðherra þakkaði hv. þm. Kristjáni L. Möller fyrir að hafa átt frumkvæði að þessu góða máli? Ég held að það skipti máli þegar við erum að vega þetta og meta að samstaða skuli ríkja um svona mikilvægan þátt í uppbyggingu heilbrigðiskerfisins.
Mig langar líka, frú forseti, að spyrja hæstv. ráðherra nú þegar verið er að, eigum við að segja, endurdreifa til þjóðarinnar þeim miklu verðmætum sem hún átti í Símanum með því að ráðast í ýmis mikilvæg verkefni: Er hann þá ekki hnugginn yfir því að ekki skuli hafa tekist að ákveða að veita fjármagn t.d. til aldraðra í formi þess að ráðast í áfanga varðandi byggingu dvalar- og hjúkrunarheimila? Ég spyr hæstv. ráðherra: Telur hann ekki koma til greina að það verði tekið sérstaklega upp í umfjöllun þingsins vegna þess að mér finnst þeir afskiptur hópur hvað þetta varðar? Þetta fólk hélt jú landinu uppi á meðan Síminn varð að þeirri miklu eign sem hann var þegar hann var seldur.