132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[17:23]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F):

Hæstv. forseti. Við ræðum frumvarp til laga um ráðstöfun og söluandvirði Landssíma Íslands hf. Hér hafa verið fluttar ýmsar ræður bæði í dag og eins í síðustu viku þar sem þetta mál hefur verið rætt og ég verð að segja það alveg eins og er eftir að hafa hlustað á umræðuna að það er misgáfulegt sem kemur frá mönnum í henni, því miður. Sumt af því er byggt á pólitískum áróðri sem er út af fyrir sig. Annað er byggt á vanþekkingu nema menn vilji vísvitandi halda fram málum með röngum hætti þó að þeir viti betur. Ég skal ekki um það segja. En svona er þetta nú og mér finnst sumt í þessari umræðu bera keim af því.

En varðandi söluna á Landssímanum þá hefur málið auðvitað haft langan aðdraganda eins og við þekkjum en ég tel að framkvæmd sölunnar sem er nýafstaðin hafi tekist mjög vel, verið vel heppnuð og vel að henni staðið og öllum til sóma sem að henni stóðu.

Það var lengi deilt um í fyrsta lagi hvort ætti að selja Símann eða ekki og í öðru lagi hvort ætti að selja hann eins og það var gert núna eða ekki. Sumir héldu því fram að það ætti að halda eftir því sem menn kalla grunnnet, ég hef reyndar aldrei fengið botn í hvað menn hafa átt við með grunnneti því það hefur ekki verið mjög skýrt skilgreint í umræðunni. Ég hef alla tíð verið sammála því að það ætti að selja fyrirtæki á þann hátt sem gert var núna þannig að ég fagna því sérstaklega og lýsi ánægju með framkvæmdina.

Í frumvarpinu koma fram tillögur frá ríkisstjórninni um hvernig skuli farið með söluandvirðið og mér finnst þær ákaflega skynsamlegar fyrir margra hluta sakir. Þar er m.a. tekið tillit til stöðu í efnahagsmálum um þessar mundir og þar eru gerðar tillögur um ráðstöfun fjármuna á næstu árum, til málefna sem eru öll hvert á sinn hátt ákveðin þjóðþrifamál.

Svo við förum aðeins yfir þá hlið sem snýr að efnahagsmálunum þá er gert ráð fyrir því í tillögunni að sá hluti söluandvirðisins sem er greiddur í erlendum gjaldeyri verði nýttur til að greiða niður erlendar skuldir þannig að þeir fjármunir munu ekki koma inn í hagkerfi okkar en að sjálfsögðu njótum við þess að lækka skuldir með þessum hætti og það er auðvitað mjög jákvætt miðað við þær aðstæður sem við búum við í dag. Hins vegar er gert ráð fyrir að hinn hluti söluandvirðisins verði að mestu leyti lagður inn í Seðlabankann til ávöxtunar og það er auðvitað mjög skynsamleg aðgerð við núverandi aðstæður. Á þennan hátt erum við auðvitað að lækka skuldir ríkissjóðs allverulega. Við erum að létta verulega á vaxtabyrðinni á næstu árum og allt er þetta gríðarlega ánægjulegt og ég lýsi sérstakri ánægju með að gert sé ráð fyrir að greiða skuldir ríkissjóðs niður eins og hér er gerð tillaga um.

Það blasir auðvitað við að aukið svigrúm verður í fjárlögum allmargra næstu ára til hinna ýmsu málaflokka, velferðarmála, fjárfestinga eða hvað sem er, að því leyti til virkar þetta allt mjög jákvætt. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fjármunir verði nýttir til fjárfestinga og framkvæmda eftir að mesta þensluskeiði lýkur árið 2007 og þar með er auðvitað verið að beita ríkissjóði til sveiflujöfnunar í hagkerfinu sem er auðvitað mjög skynsamleg ráðstöfun.

Í frumvarpinu er gert ráð að 15 milljörðum kr. verði varið til framkvæmda í vegamálum. Sumir hafa kallað þetta samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar, gefið þessu hin ýmsu heiti en það er auðvitað ljóst að hér er um að ræða mjög stórar framkvæmdir sem verða fjármagnaðar á þennan hátt og að sjálfsögðu blasir það við að með því skapast meira svigrúm í samgönguáætlun og vegáætlun næstu ára en ella.

Í þessari umræðu um sölu Símans hefur mikið verið rætt um að verið sé að selja mjólkurkúna eða ættarsilfrið eða hvernig sem menn hafa orðað það og því er haldið fram sérstaklega af Vinstri grænum að hér sé ekki rétt að farið því að ríkissjóður hafi fengið svo mikinn arð af Símanum undanfarin ár en það er auðvitað eins og m.a. hefur fram komið hjá hæstv. forsætisráðherra að með umræddri ráðstöfun erum við auðvitað að fá miklu meiri arð af þessari eign okkar en ef hún væri bundin áfram í Landssímanum. Þar er ekki bara um að ræða fjárhagslegan arð heldur líka ýmsan annan. Við getum talað um að hér er gert ráð fyrir að kaupa nýtt skip fyrir Landhelgisgæsluna og nýja flugvél, er það ekki arður fyrir þjóðina sem býr við þær áherslur í sjávarútvegi sem við þekkjum, að efla öryggi sjófarenda? Ég kalla það bara stórkostlega mikinn arð ef við leyfum okkur að tala um þetta með þeim hætti og hið sama má segja um sjúkrahús o.s.frv. Þannig að við erum að losa fjármagn sem við ætlum að nýta til tiltekinna hluta sem auðvitað eru stór þjóðþrifamál og ber að fagna.

Í umræðunni fyrr í dag kom fram hjá formanni Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að það væri alveg hægt að fara í þetta allt saman sem hér er gerð tillaga um, þó svo að við seljum ekki Símann. En mér finnst slíkur málflutningur ekki bera vott um mikla ábyrgð hins vegar gæti verið að þarna sannaðist það sem sumir hafa haldið fram að vinstri menn haldi stundum að peningarnir detti hreinlega af himnum ofan og ég skal ekki um það segja.

Í þessu máli er auðvitað margt sem væri vert að fara yfir, t.d. að það er svo skrýtið að með þessari sölu ber ríkissjóði að greiða sjálfum sér fjármagnstekjuskatt. Það er bara samkvæmt lögum og út af fyrir sig er verið að færa peninga úr einum vasa í annan. En hvað skyldi þetta hafa í för með sér? Jú þetta hefur það í för með sér að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fær meira framlag úr ríkissjóði fyrir vikið vegna þess að framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga miðast við ákveðið hlutfall af skatttekjum ríkissjóðs. Það sem hér er um að ræða er að ríkið þarf að greiða sjálfu sér fjármagnstekjuskatt, það hækkar skatttekjurnar og færir Jöfnunarsjóði sveitarfélaga aukið framlag. Þannig fá ýmsir ávinning af þessu, arð ef við viljum fara út í það, og þannig fá sveitarfélögin ákveðna hlutdeild í söluandvirðinu.

Hæstv. forseti. Ég ætla aðeins að hlaupa á nokkrum atriðum í frumvarpinu. Það er ljóst að við slíkar aðstæður þar sem verið er að leggja fram tillögur um ráðstöfun eins mikilla fjármuna og hér er gert ráð fyrir þá hafa hinir ýmsu aðilar að sjálfsögðu alls konar hugmyndir um hvað gera ætti við þá og það er út af fyrir sig skiljanlegt og alls ekkert óeðlilegt við það.

Fyrst varðandi vegaframkvæmdirnar en þar um að ræða 15 milljarða þar sem gerð er tillaga um tilteknar vegaframkvæmdir. Þessar framkvæmdir allar koma hver fyrir sig fram í langtímaáætlun um vegamál sem Alþingi hefur samþykkt þannig að hér er ekki um að ræða neinar nýjar framkvæmdir að því leyti en hins vegar er verið að flýta þeim allverulega, þ.e. stórum framkvæmdum. Ég ætla ekki að fara yfir þær hverja fyrir sig í smáatriðum en þær koma fram í þingskjali og ég lýsi ánægju með það eins og þetta lítur út.

Síðan er hér stórt mál sem hefur verið mikið í umræðunni og það er uppbygging Landspítala – háskólasjúkrahúss. Í umræðunni í dag hafa menn m.a. verið að takast aðeins á um hver hafi verið fyrstur að nefna það eða koma með það mál inn í þingið. Ég ætla ekki að taka þátt í því en málið er jafngott fyrir það.

Mig langar aðeins, virðulegi forseti, að leggja inn í umræðuna um þjóðarsjúkrahúsið, eins og menn hafa nefnt það, að gert er ráð fyrir að sú uppbygging fari fram á lóð Landspítala – háskólasjúkrahúss við Hringbraut í Reykjavík. Ég hef hins vegar velt því fyrir mér hvort menn hefðu ekki átt að skoða þann möguleika að færa þessa starfsemi vegna þess að mér finnst ekki sjálfgefið og út af fyrir sig að mörgu leyti óeðlilegt að slík starfsemi verði byggð upp á þessu svæði hér rétt við miðborgina. Við vitum hvernig umferðin er hér til og frá og allt í kring. Ég velti því upp hér í umræðunni, og það væri gaman að heyra viðbrögð manna við því, hvort ekki hefði verið skynsamlegt að velja annan stað fyrir þessa stofnun. Það blasir við að eignir sjúkrahússins í Fossvogi verði seldar og jafnframt þau lóðarréttindi sem þar eru og það er gríðarlega mikill húsakostur við Hringbrautina. Með því að selja hann einnig fást gríðarlegir fjármunir til uppbyggingar. Hér er gert ráð fyrir að byggja við gamalt, gamlar byggingar sem sumir telja að þjóni ekki kröfum tímans. En með því að færa þessa starfsemi annað, sem ég ætla út af fyrir sig ekki að gera tillögu um hér nákvæmlega, mætti auðvitað hanna þjóðarsjúkrahús frá grunni sem hlýtur að vera hagkvæmara að mörgu leyti. Sú umræða hefur ekki farið fram, a.m.k. ekki í mín eyru, en ég tel að þegar við ræðum svo stórt og mikið mál sem nær svo langt inn í framtíðina sem raun ber vitni beri okkur að ræða það út frá ýmsum hliðum og komast að niðurstöðu um það.

Ýmislegt fleira er í frumvarpinu. Þar er gert ráð fyrir 2,5 milljörðum í svonefndan fjarskiptasjóð sem nýta á samkvæmt ákvæðum í fjarskiptaáætlun sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor. Í frumvarpinu kemur fram að hæstv. samgönguráðherra muni fljótlega leggja fram frumvarp um hvernig með þetta skuli farið og það er auðvitað vel. Ég legg áherslu á, og vil þar með taka þátt í þeirri umræðu hver var fyrstur með hvað, að við framsóknarmenn lögðum mikla áherslu á það á sínum tíma þegar ákveðið var að selja Símann að tekið yrði frá verulegt fjármagn í þessu skyni til þess að byggja upp fjarskiptin, sérstaklega úti á landsbyggðinni, og ég fagna því mjög að þetta mál skuli vera hér til umræðu og er sannfærður um að það mun hafa mikið að segja varðandi aðgengi manna að fjarskiptaþjónustunni.

Virðulegi forseti. Hægt væri að fara yfir margt fleira í frumvarpinu, mörg einstök atriði, en ég ætla ekki að teygja tímann með því en aðeins taka þátt í umræðunni sem hér hefur farið fram um form málsins. Nokkrir hv. þingmenn hafa velt því fyrir sér hvort eðlilegt sé að leggja málið upp með þessum hætti, þ.e. í frumvarpi til laga, og hér hafa verið haldnar lærðar ræður um það og út af fyrir sig komið margar ágætar ábendingar í því efni. Ég held að það sé ekkert óeðlilegt við það að lagt sé fram frumvarp með þessum hætti vegna þess að það er munur á lögum annars vegar og þingsályktun hins vegar. Og það er eins með þetta mál og öll önnur lög að þingmeirihluti á hverjum tíma getur auðvitað gert breytingar á þeim.

Síðan velta menn fyrir sér hvort eðlilegt sé og hægt sé að binda útgjöld svona langt fram í tímann með þessum hætti. Þá er rétt að benda á að við búum við alls konar lög sem gera ráð fyrir starfsemi og útgjöldum langt fram í tímann. Tína mætti til fjölmörg lög í því sambandi en öll hafa þau það sammerkt, þar á meðal þetta frumvarp líka, að leita ber fjárheimilda í fjárlögum hvers árs fyrir viðkomandi starfsemi þannig að það er eins með þetta mál og önnur lög sem við þekkjum.

Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa mál mitt öllu lengra, ég hef komið á framfæri helstu atriðum sem ég vildi nefna í þessari umræðu en hún er fyrir margt mjög athyglisverð. Menn hafa komið með ýmsar skoðanir á málinu, bæði varðandi sína pólitík og stefnu, um rekstrarform og allt hvaðeina, en hér er auðvitað um að ræða mjög stórt og víðfeðmt mál sem er allrar athygli vert.

Ég vil bara segja að lokum, virðulegi forseti, að ég lýsi ánægju með hvernig salan á eignarhlut ríkisins í Landssímanum tókst til. Við sjáum fram á að geta nýtt þessa gríðarlega miklu fjármuni með þeim hætti sem hér er lagt upp með til framtíðar og allt mun þetta skapa okkur aukið svigrúm til annarra hluta einnig. Við horfum fram á það núna að eftir að búið er að greiða niður skuldir á þann hátt sem gert er ráð fyrir m.a. vegna þessa máls, fyrir utan góðan afgang fjárlaga, að þá verði ríkissjóður Íslands með þeim minnst skuldsettu í okkar heimshluta. Því ber auðvitað að fagna og það styrkir stöðu okkar til framtíðar. Við munum lækka vaxtabyrði og vaxtagjöld á næstu árum og allt er þetta, eins og málið í heild sinni, í þágu framtíðarinnar og því ber sérstaklega að fagna. Ætla ég ekki að hafa fleiri orð um málið að sinni, virðulegi forseti.