132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[17:41]
Hlusta

Guðjón A. Kristjánsson (Fl) (andsvar):

Hæstv. forseti. Varðandi þá spurningu sem hv. þingmaður velti upp í sambandi við staðsetningu hátæknisjúkrahúss, hvort hátæknisjúkrahús ætti endilega að vera staðsett þar sem það er í dag. Ég held að þetta sé mjög áhugaverð spurning, að menn velti þessu vandlega fyrir sér, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem er um Reykjavíkurflugvöll. Þetta tengist allt saman því að landsmenn horfa auðvitað til hátæknisjúkrahúss sem þeir eigi aðgang að, jafngóðan aðgang og aðrir landsmenn, og að þetta sé sjúkrahús sem geti tekið við verulega slösuðu fólki og mikið sjúku fólki.

Ég vil því spyrja hv. þingmann hvort hann hafi m.a. velt því upp þegar hann nefndi að skoða ætti staðsetningu hátæknisjúkrahúss annars staðar en ráð er fyrir gert. Ég held að það komi vel til greina að skoða það í tengslum við ýmislegt annað sem verið er að ræða í þjóðfélaginu.