132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[17:42]
Hlusta

Magnús Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi staðsetningu sjúkrahússins þá vitna ég bara í það sem ég sagði áðan að það hafa auðvitað verið uppi umræður um þetta áður, ef ég man rétt. Þetta er því mál sem ég tel eðlilegt að menn fjalli um í þessu sambandi.