132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[17:46]
Hlusta

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst það merkilegt að jafnveigamikill þingmaður og hv. formaður fjárlaganefndar er skuli koma hingað og gagnrýna það frumvarp sem hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir sitt leyti á þátt í að leggja hér fram.

Hv. formaður fjárlaganefndar gagnrýnir tvennt sem er megineinkenni á þeim hluta frumvarpsins sem lýtur að hæstv. heilbrigðisráðherra. Í fyrsta lagi lýsir hv. þingmaður því yfir að hann hafi efasemdir um að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi tekið rétta ákvörðun um staðsetningu sjúkrahússins. Hvað veldur því?

Í öðru lagi gagnrýnir hv. formaður fjárlaganefndar þá ákvörðun hæstv. heilbrigðisráðherra að fara þessa leið við að búa til hið sameinaða hátæknisjúkrahús. Ég spyr hv. þingmann: Hefur hann viðrað þessa gagnrýni sína innan þingflokks Framsóknar og er það svo að þingflokkur Framsóknarflokksins sé þá klofinn um þessi tvö grundvallaratriði að því er varðar byggingu hátæknisjúkrahússins?