Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Virðulegi forseti. Ég veit ekki hvort ég á að leiðrétta hv. þm. Magnús Stefánsson, formann fjárlaganefndar, þegar hann sagði að það væru mörg dæmi þess í lögum að verið væri að ráðstafa tekjum á svipaðan eða sambærilegan hátt og hér um ræðir. Það eru engar hliðstæður þess. Hins vegar eru ákvæði í lögum um hvernig skuli ráðstafa framtíðartekjum og þá framtíðargjöldum en það byggist náttúrlega á forsendum hvers árs fyrir sig. Við sjáum því á hverju ári ákvæði sem oftar en ekki byrja á „þrátt fyrir“ vegna þess að forsendur eru breyttar og hv. þingmenn taka ákvörðun um að gera hlutina á annan hátt en upphaflega hugmyndin er. Kjarni málsins er sá að það hefur aldrei áður verið ráðstafað peningum í hendi á þann hátt sem hér um ræðir. Það gerir líka þinginu erfitt um vik í framtíðinni, að minni hyggju, að breyta þessum ákvörðunum. En á móti kemur að ég hef einnig sagt að þetta eru mörg fín verkefni og ég geri ekki neinar athugasemdir við það. Ég vildi aðeins nefna þetta.
Megintilefni þess að ég óskaði eftir að veita andsvar er að ég hef ekki náð alveg utan um það ákvæði hvernig menn hugsa þennan fjarskiptasjóð og hvernig menn hugsa þessar framkvæmdir og hvernig menn hugsa það að láta þær frá sér. Erum við í raun og veru að tala um að ríkið ráðist í framkvæmdir og leigi þær fyrir lítið fé, er um einhvers konar niðurgreiðslu að ræða til þeirra símafyrirtækja sem nú starfa eða hvernig er þetta hugsað? Hér er oftar en ekki vísað til þess að hæstv. samgönguráðherra skuli á síðari stigum leggja fram frumvarp sem á einhvern hátt útskýri þetta frekar. En mér finnst ekki mikið þó að í þessari umræðu verði okkur greint frá því hver grunnhugsunin er á bak við þessa leigu og hvernig menn hugsa þetta. Mér finnst það skipta miklu máli í þeirri umræðu sem fram undan er varðandi þennan fjarskiptasjóð að við fáum nokkuð skýra mynd af því hvernig þetta er hugsað.