Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Hæstv. forseti. Ég kenni ekki embættismönnum um neitt. Ég er viss um að þeir hafa talið sig fara eftir bestu samvisku á þeim tíma. Þarna er hins vegar um ríkisstofnun að ræða. Rekstur á ríkisstofnunum verður alltaf þungur og erfiður. Ríkisstofnanir eiga erfitt með að bregðast við í samkeppnisumhverfi og þess vegna eiga þær ekki að standa í samkeppnisrekstri. Ég held að það séu lögmál sem við erum öll farin að læra, jafnvel hv. þm. Ögmundur Jónasson.
Það sem gerst hefur eftir allar þær breytingar sem við höfum upplifað á fjarskiptamarkaði er að símgjöld hafa lækkað og öll þessi þjónusta, bæði vegna samkeppninnar og ekki síður vegna tæknibreytinga sem orðið hafa. Nú er boðið upp á ein lægstu símgjöld sem við þekkjast á Íslandi. Það er vel staðið að þeim málum á Íslandi (Forseti hringir.) á einkamarkaði.