Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf. Ég fagna því frumvarpi sem liggur fyrir þinginu. Það má eins og alltaf áður að sjálfsögðu deila um hvernig verja beri svo miklum fjármunum sem hér eiga í hlut en ég tel að ríkisstjórnin hafi nálgast þetta verkefni af skynsemi og ábyrgð. Ég tel að við hljótum að geta sameinast um þau þjóðþrifamál sem frumvarpið kveður á um að verði hrint í framkvæmd. Allt eru þetta mál sem vart þarf að deila um. Með þessu er ljóst að einkavæðingin var ekki í þágu fárra heldur í þágu allrar þjóðarinnar. Hún gerir ríkinu kleift að styrkja innviði samfélagsins öllum landsmönnum til hagsbóta og ekki síst komandi kynslóðum. Sala Símans og einkavæðing hans hefur tekist afskaplega vel og hefur verið vel að henni staðið. Miklu hærra verð fékkst fyrir Símann en búist var við og að mínu viti hefur sá ferill allur verið vandaður eins og kom fram hjá hæstv. forsætisráðherra fyrr í dag.
Mikið hefur verið rætt um sölu Símans í langan tíma og flestir hafa verið sammála um að fara þessa leið en að sjálfsögðu ekki allir. Það hefur til að mynda komið sterkt fram hjá Vinstri hreyfingunni – grænu framboði, svo að því sé haldið til haga, að þeir eru þessu algjörlega mótfallnir eins og þeir eru mótfallnir sölu á öllum ríkisfyrirtækjum. Við vitum hvar við höfum þá og þeirra skoðun er skýr og það þarf ekkert að deila um það, ég virði þá fyrir það.
Svo voru aðrir sem voru ekki mjög bjartsýnir á að þetta gæti gengið upp og mundi takast eins vel og raun varð. En nú er þetta í höfn, það er búið að selja Símann, góð sala, nýir eigendur hafa tekið við þessu ágæta fyrirtæki og það fyrirtæki verður í samkeppni við önnur fyrirtæki á sama markaði. Það má geta þess sérstaklega að fyrirtækið var góð söluvara vegna þess að það hafði verið vel rekið. En sú þörf er ekki lengur fyrir hendi að ríkið sé í þessum rekstri, ríkið á einfaldlega ekki að vera í samkeppnisrekstri.
Undanfarin ár hefur ríkið verið að losa sig út úr samkeppnisrekstri með góðum árangri og mikil áhersla hefur verið lögð á að ríkið einbeiti sér að þeim verkefnum sem það á að sinna. Má þar nefna að þjónusta hefur verið efld í mennta- og heilbrigðismálum þar sem miðað er við það besta sem þekkist í heiminum. Staða Íslands er góð, í lífskjarakönnun Sameinuðu þjóðanna er staða Íslands sú næstbesta af þeim löndum sem þar eru og staða Íslands er góð borið saman við önnur ríki í OECD.
Hæstv. forseti. Það mikilvægasta af öllu er að nú er verið að losa fjármagn til mikilvægra samfélagsverkefna og um það ættu allir að geta verið sammála. Ráðstöfun söluandvirðisins verður í aðalatriðum tvíþætt samkvæmt frumvarpinu. Annars vegar er lagt til að drjúgum hluta söluandvirðisins verði varið til að greiða niður erlendar skuldir ríkisins. Þetta mun leiða til minni endurgreiðslu og vaxtabyrði fyrir ríkissjóð á komandi árum. Hins vegar er gert ráð fyrir að stærstum hluta söluandvirðisins, þ.e. 43 milljörðum kr., verði varið til þess á næstu árum að styrkja innviði samfélagsins, m.a. til að bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu; efla rannsóknar- og þróunarstörf og örva þannig frumkvöðlastarfsemi og nýsköpun í atvinnulífinu; treysta undirstöðu byggðar í landinu og skapa jöfn skilyrði til atvinnu með bættum samgöngum og jöfnun aðstöðu landsmanna hvað varðar aðgengi að fjarskiptum. Nánast öll landsbyggðarsveitarfélögin sem hafa komið til fjárlaganefndar núna í haust hafa kallað eftir betra aðgengi að fjarskiptum og betra GSM-sambandi og í þessu frumvarpi er ætlunin að styrkja þá innviði samfélagsins. Verður 2,5 milljörðum varið til uppbyggingar í samræmi við fjarskiptaáætlun. Meginmarkmiðið með ráðstöfun fjárins er í fyrsta lagi að auka öryggi vegfarenda og aðgengi að farsímaþjónustu á þjóðvegum landsins en flestir líta orðið á GSM-símana sem algjörlega nauðsynleg tæki og raunar sem tryggingu fyrir því að þeir nái í hjálp ef eitthvað bregður út af.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir að fjármunum verði varið til að stuðla að dreifingu stafræns sjónvarps um gervihnött með stórbætta þjónustu fyrir sjófarendur og strjálbýli að leiðarljósi.
Í þriðja lagi er gert ráð fyrir öflugri uppbyggingu á háhraðatengingum á þeim svæðum sem ekki er líklegt að verði þjónað á markaðslegum forsendum. Upplýsingatækni er leiðandi í hagvexti og atvinnuuppbyggingu í Evrópu og víðast annars staðar, m.a. hér á landi. Áætlað er að stuðla að og hraða þróun upplýsingasamfélagsins svo allir landsmenn sem þess óska geti tengst háhraðaneti og notið hagkvæmrar og öruggrar fjarskiptaþjónustu.
Hæstv. forseti. Með því að kveða á um ráðstöfun fjárins til svo langs tíma sem raun ber vitni er verið að eyða óvissu um hvert fjármunir fara og um leið að tryggja að þeir nýtist sem best til þjóðþrifaframkvæmda sem annars yrði ekki kleift að ráðast í. Á árunum 2007–2010 verður 15 milljörðum kr. varið til framkvæmda í vegamálum. Með því er framkvæmdafé til vegagerðar meira en tvöfaldað á tímabilinu. Það er mjög mikilvægt að halda því til haga að aldrei hefur jafnmiklu fjármagni verið varið til vegagerðar og undanfarin ár, aldrei nokkurn tíma í sögu Íslands.
Það hafa allir miklar skoðanir í samgöngumálum og einhverjir hefðu viljað sjá aðra vegi í þessu frumvarpi. Það hefur hver sína skoðun á því. Val á vegaframkvæmdum sem fjármagna á af söluandvirði Landssímans hefur trúlega fyrst og fremst ráðist af því hver Vegagerðin hefur talið brýnustu verkefnin í samgöngumálum landsmanna og allt eru þetta verkefni sem koma við sögu á samgönguáætlun og hafa öll verið margrædd hér á háttvirtu Alþingi. Það er eitt sem allir alþingismenn eiga sameiginlegt, þeir hafa allir mjög mikinn áhuga á samgöngubótum í landinu.
Ég er fyrir mitt leyti ánægð með hvað kemur í hlut Suðurkjördæmis. Það eru 3,1 milljarður kr. af þessum 15 milljörðum og má fyrst til nefna tvöföldun Reykjanesbrautarinnar. Í hana á að fara 1,6 milljarðar, í hringveginn um Hornafjarðarfljót 800 millj. kr. og það gerir það að verkum að leiðin frá Reykjavík til Hornafjarðar mun styttast um allt að 10 km, sem hlýtur að vera mikið hagsmunamál fyrir Hornfirðinga.
Þá er gert ráð fyrir að Bræðratunguvegur um Hvítá fái 300 millj. kr. og er sá vegur ný vegtenging yfir Hvítá í Árnessýslu og mun þar brúa tvö sveitarfélög sem er mjög mikilvægt. Þetta er mikið hagsmunamál fyrir nærliggjandi byggðir og þetta er mál sem hefur verið lengi á döfinni og má segja að það sé núna loksins í höfn og er það vel. (Gripið fram í.)
Síðan er það Suðurstrandarvegur með 400 millj. kr. og nú þegar er byrjað á Suðurstrandarvegi, það er kaflinn um Festarfjall austan Grindavíkur, og í haust verður næsti áfangi boðinn út sem er stuttur kafli næst Þorlákshöfn. Allt eru þetta vegabætur sem skipta miklu máli. Með þessari ákvörðun verður hægt að leggja miklu meiri áherslu á aðra vegi og vil ég þá nefna Hellisheiðina. Halda þarf áfram þeim góðu samgöngubótum sem þar er nýlokið við, unnið fyrir um 400 millj. kr., þreföldun á vegi og mislæg gatnamót. Þetta verkefni var ekki á vegáætlun og er mjög mikilvægt að ráðist var í það, verður til þess að haldið verður áfram með þann veg þannig að hann verður allur 2+1 alla leið frá Reykjavík og að Hveragerði, og síðan tel ég að það eigi að halda þessu áfram að Þjórsárbrú.
Með þessari ákvörðun er framkvæmdafé til vegagerðar meira en tvöfaldað. Og ég vil þá leggja mikla áherslu á að hugað verði að tengi- og safnvegum á landsbyggðinni sem margir hverjir eru gamlir malarvegir, holóttir og nánast ónýtir. Eftir þessum vegum ferðast skólabörn til og frá á hverjum degi og fullorðnir sækja vinnu. Á þessu er mjög brýnt að taka því að æ fleiri kjósa að búa úti á landi og sækja vinnu til Reykjavíkur eða annarra þéttbýlisstaða og það er mjög mikilvægt fyrir byggðina í landinu að þessum vegum sé sinnt.
Samkvæmt frumvarpinu eru miklir fjármunir ætlaðir til byggingar á nýju þjóðarsjúkrahúsi og ég held að við það verkefni geti allir verið mjög sáttir, ekki síst þeir sem vinna á Landspítala – háskólasjúkrahúsi. Það munar miklu þegar hægt verður að reka sjúkrahúsið, sem er núna rekið á tveimur stöðum, á einum stað. Ég held að það hljóti að teljast mikið hagsmunamál fyrir alla.
Þá er gert ráð fyrir að verja 3 milljörðum kr. til löggæslu- og björgunarstarfa. Mikið hefur verið rætt um það hér á Alþingi að smíða þurfi fullkomið varðskip og björgunarskip, bæði til að þjóna landhelgisgæslu og björgunarstarfi, og nú eru fjármunir ætlaðir í það. Flugvél Landhelgisgæslunnar er líka komin til ára sinna og því var kominn tími til að endurnýja þennan tækjakost allan og er 3 milljörðum vel varið í þennan málaflokk.
Í samræmi við það markmið ríkisstjórnarinnar að efla nýsköpun og endurnýjun í atvinnulífinu verður eigið fé Nýsköpunarsjóðs aukið um 2,5 milljarða samkvæmt frumvarpinu. Gert er ráð fyrir að hluta af þessu fjármagni, eða 1,5 milljörðum kr., verði varið með þeim hætti að Nýsköpunarsjóður standi að því ásamt lífeyrissjóðunum og fjármálastofnunum og hugsanlega öðrum fjárfestum að fjárfesta í svokölluðum sprotafyrirtækjum. Gert er ráð fyrir að Nýsköpunarsjóður eigi ekki meira en 50% í slíkum sjóði eða sjóðum. Nú eiga sér stað viðræður við lífeyrissjóðina og fjármálafyrirtæki um þetta mál og hefur það vonandi gengið vel.
Þá er lagt til að farið verði í stórátak í uppbyggingu búsetuúrræða og þjónustu fyrir geðfatlaða með því að ráðstafa til málefnisins einum milljarði kr. af söluandvirði Símans. Miðað er við að 150 einstaklingar njóti góðs af þeirri uppbyggingu, einstaklingar sem eru í brýnni þörf. Það var mat manna að það væri ekki síst á þeim vettvangi, þar sem þörfin væri afar mikil, að nauðsynlegt reyndist að koma til móts við einstaklinga og bæta úr þeim aðstæðum sem þeir búa við.
Árið 2011 verða 100 ár liðin frá stofnun Háskóla Íslands og 200 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar og af því tilefni er lagt til að einum milljarði kr. verði varið til að reisa nýtt hús fyrir Stofnun íslenskra fræða, Árnastofnun, en sú stofnun verður til við samruna Örnefnastofnunar, Orðabókar Háskólans, Íslenskrar málstöðvar og Stofnunar Sigurðar Nordals.
Hæstv. forseti. Ég tel að söluverði Símans sé vel varið í að greiða niður skuldir, sem skiptir miklu máli, og í að styrkja innviði samfélagsins en þetta frumvarp er nýmæli. Það er nýtt að fara þá leið sem nú er lögð til, þ.e. að lögbinda ráðstöfun á söluandvirði einkavædds fyrirtækis með þessum hætti fram í tímann. En að sjálfsögðu verður gert ráð fyrir því í fjárlögum fyrir hvert ár þegar þar að kemur. Hæstv. forseti, ég hef þá lokið máli mínu.