132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[19:54]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég óska eftir því að hv. þm. Pétur H. Blöndal skýri aðdróttanir sínar í garð opinberra starfsmanna. Hann heldur því fram í ræðustól á Alþingi að opinberir starfsmenn geti ekki staðið fyrir nýsköpun. Hvers konar staðhæfing og bull er þetta eiginlega? Þetta er ekki aðeins aulaleg yfirlýsing, hún er líka mjög alvarlegs eðlis og slæmur vitnisburður um hv. þingmann.