Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Frú forseti. Á að gilda eitthvað annað um aldraða en vegi? Þarf sérstakar fjárveitingar til þess að ýta undir vegagerð á landsbyggðinni, með ýmsum rökum, sem er síðan ekki hægt að nota gagnvart öldruðum vegna þess að þar er verið að vinna samkvæmt áætlun? Má ég minna hv. þingmann á að þar var verið að vinna samkvæmt alveg prýðilegri áætlun um samgöngubætur á Íslandi. Það er ekki svo að ég hafi verið að segja að það sé eitthvað sérstaklega illa staðið að því að þróa aðhlynningu aldraðra en það er einfaldlega þannig að þegar menn eru ábyrgir fyrir því að reka ríki þá þurfa þeir að taka tillit til margra sjónarmiða. Það er vægi sjónarmiðanna sem veldur endanlegri niðurstöðu. Ég er ekki að halda því fram og ekki sérstaklega á seinni árum að þá hafi menn ekki haft augun á þörfum aldraðra. Ég er hins vegar að segja eftirfarandi: Það eru sérstakar aðstæður, við stöndum með potta úr silfri í höndunum og erum að velta því fyrir okkur hvernig eigi að verja því og menn hafa tekið ákvörðun um það. Ég er einfaldlega að segja að ég hefði viljað sjá ákvarðanirnar teknar með svolítið öðrum hætti. Ég hefði viljað sjá sérstakar fjárveitingar settar til að þjónusta betur framtíðarþarfir aldraðra vegna þess að við munum ekki aftur standa með þennan silfurpott í fanginu, það er bara núna. Það eru rök mín. Í því felst ekki endilega að ég sé að setja fram harða gagnrýni á aðbúnað aldraðra í landinu. Mér er mætavel kunnugt um að það hefur verið stöðug framför hvað varðar aðhlynningu aldraðra, heimahjúkrun og heimaþjónustu. Ég er alveg sammála því þótt ég telji að þar sé í flestum tilvikum miklu frekar sveitarfélögum að þakka en ríkinu. Ég vil ekki deila við hv. þingmann um það. Ég er bara að segja að núna stöndum við frammi fyrir því að endurdreifa til þeirra sem byggðu upp Símann á sínum tíma og þá finnst mér sú kynslóð vera afskipt. Það er sjónarmið mitt.