132. löggjafarþing — 5. fundur,  10. okt. 2005.

Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.

3. mál
[20:45]
Hlusta

Ögmundur Jónasson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætla að leiða það hjá mér þótt hæstv. forsætisráðherra hafi notað lokaorð sín til að gefa stjórnmálamönnum og stjórnmálaflokkum einkunnir í samræmi við afstöðu þeirra til stóriðju og stóriðjuáforma stjórnvalda. Sumar þær hugmyndir, tillögur og ákvæði sem er að finna í þessu frumvarpi eiga án efa eftir að koma til umfjöllunar á Alþingi síðar, ekki síst þær sem lúta að fjárveitingum til framkvæmda á næsta og jafnvel þar næsta kjörtímabili. En hinu vil ég halda til haga að þó að hæstv. forsætisráðherra hafi vissulega sagt að ekki hafi allir verið á einu máli um þessi mál á Alþingi, að Vinstri hreyfingin – grænt framboð hafi t.d. verið andvíg því að selja Símann, að markaðsvæða hann og selja hann, andvíg þeirri ráðstöfun á öllum stigum máls, þá er andstaðan gegn þessari gjörð miklu víðtækari en nemur þessari andstöðu innan veggja Alþingis. Gerðar hafa verið nokkrar kannanir á meðal þjóðarinnar um afstöðu hennar til markaðsvæðingar og sölu Símans. Allar hafa þær verið á sama veg. Þjóðin hefur verið því andvíg.

Hvað grípur ríkisstjórnin þá til ráðs? Hún reynir að kaupa sér vinsældir. Við höfum orðið vitni að því í dag hvernig fjármunir fyrir sölu á Símanum eru eyrnamerktir umfram aðra fjármuni sem koma inn í ríkissjóð til þess að kaupa þessari aumu ríkisstjórn vinsældir og þess vegna er höfðað til geðfatlaðra, til sjúkra o.s.frv. (Forseti hringir.) Þetta er einhver sá aumasti málatilbúnaður sem ég hef nokkurn tíma orðið vitni að.