Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Hæstv. forseti. Skoðanakannanir stjórna ekki skoðunum mínum. Ég bendi hins vegar á þá staðreynd að skoðanakannanir gefa til kynna að sala Símans sé óvinsæl með þjóðinni. Ég vil taka þátt í því að ráðstafa fjármunum sem koma inn í ríkissjóð en þegar það gerist að þessir peningar eru sérstaklega eyrnamerktir umfram aðra peninga sem koma inn í ríkissjóð — þessar krónur eru ekkert öðruvísi en peningarnir sem við greiðum í skatt inn í ríkissjóð — og þetta er að ganga upp hjá ríkisstjórninni að hún kaupi sér vinsældir með því að eyrnamerkja þetta fjármagn, mér finnst það auðvirðilegur málatilbúnaður.