Ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
Frú forseti. Nú finnst mér sem málstaður hæstv. forsætisráðherra sé virkilega farinn að versna. Það kemur upp úr kafinu að það hefur verið rætt hvort flýta ætti framkvæmdum sem eru á áætlun varðandi aldraða og niðurstaðan var að gera það ekki. Það var rætt hvort flýta ætti framkvæmdum vegna vega sem eru á áætlun og niðurstaðan var að gera það. Hvaða ályktun getur maður dregið af þessu? Að hæstv. ríkisstjórn er annara um steypu, malbik og asfalt en að byggja dvalarheimili fyrir aldraða. Ekki er hægt að draga aðra ályktun en nákvæmlega þetta. Það gegnir öðru máli um vegi en aldraða. Ég get ekki dregið aðra ályktun af þessu. Ég segi það alveg ærlega að mér finnst þetta ranglátt, það er mín pólitíska skoðun. Ég er þeirrar skoðunar að það hefði verið í lagi að klípa af vegaframkvæmdum, líka í mínu kjördæmi, til þess að sinna þörfum aldraðra. Það er bara skoðun mín og ég get ekki sagt annað en hana.