Viðbúnaðaráætlun vegna fuglaflensu.
Frú forseti. Fyrirspurnin sem hér er lögð fram um viðbúnaðaráætlun vegna fuglaflensu var lögð fram í upphafi þings áður en ríkisstjórnin kynnti viðbrögð sín og áætlanir vegna hugsanlegs heimsfaraldurs af völdum fuglaflensu. Ég sá þó ekki ástæðu til að draga fyrirspurn mína til baka vegna þess að ég tel mikilvægt að Alþingi ræði þetta alvarlega mál og tel reyndar að það sé skylda heilbrigðisráðherra að halda Alþingi og þingnefndum vel upplýstum um stöðu þessara mála á öllum stigum, sem ráðherra hefur ekki enn séð ástæðu til að gera.
Ef farsótt brýst út eru afleiðingar auðvitað mjög ógnvekjandi en engu að síður er mikilvægt að málið sé rætt yfirvegað og án þess að vekja upp óþarfa ótta hjá almenningi. Að sama skapi er mikilvægt að allt verði gert til að byggja upp markvissar og öflugar forvarnir þannig að við verðum sem best undir það búin ef þessi ógn yrði að veruleika. Það getur haft víðtæk áhrif á allt samfélag og heimsbyggðina alla ef heimsfaraldur brytist út.
Mér finnst mikilvægt að fá fram hér frá ráðherra hvort hann meti það svo að allar viðbúnaðaráætlanir séu eins góðar og kostur er og ekki síðri en gerist í þeim löndum sem best búa sig undir heimsfaraldur vegna fuglaflensu og þá ekki síst hvað varðar lyfjabirgðir. Er eitthvað sem kallar á lagabreytingar til þess að allar heimildir séu til staðar í forvörnum og neyðarráðstöfunum sem grípa þarf til og hefur það verið kannað að hverju þær lúta og ég spyr ráðherra: Er stefnt að því að lögfesta þær á þessu þingi?
Hvað hefur verið gert sérstaklega í sóttvörnum hér á landi til að koma í veg fyrir að smitsjúkdómar geti borist milli dýra og manna og er samkomulag milli yfirdýralæknis og sóttvarnalæknis um fyrirbyggjandi aðgerðir í því efni? Ég tel líka mikilvægt að fá fram hvort beiðnir hafi borist til stjórnvalda frá heilbrigðisyfirvöldum um fjármagn til fyrirbyggjandi aðgerða gegn fuglaflensu og hversu miklu fé hefur verið varið eða verður varið til forvarna og ég bæti við: Hvað liggur fyrir um kostnaðaráætlun og er gert ráð fyrir fjármagni í fjárlögum nú til forvarna og nauðsynlegra aðgerða? Er samstaða milli heilbrigðisyfirvalda, almannavarna, sóttvarnayfirvalda og annarra þar til bærra yfirvalda um aðgerðir? Ég vildi líka gjarnan fá fram hvernig ráðherrann hyggst standa að kynningu og fræðslu til almennings um fyrirbyggjandi viðbrögð vegna þessarar ógnar. Hyggst ráðherra gera Alþingi og nefndum þingsins grein fyrir stöðu og framvindu mála? Eftir því sem fram hefur komið munu niðurstöður liggja fyrir í desember og ég tel afar mikilvægt að hæstv. ráðherra gefi Alþingi skýrslu um stöðu mála þegar upplýsingar um viðbúnaðaráætlun og aðgerðir liggja fyrir í desember nk.
Ég lét, virðulegi forseti, ráðherra vita um það í gær að ég yrði með fleiri spurningar vegna þess hvernig þetta bar að hjá ríkisstjórninni og hæstv. ráðherra á að vera kunnugt um það.