132. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2005.

Staða loðnustofnsins.

[15:43]
Hlusta

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Það er ánægjulegt að þetta mál skuli vera tekið upp á Alþingi og menn ræði einu sinni um loðnurannsóknir. Það hefur margoft komið fram á fundum sjávarútvegsnefndar, m.a. hjá fulltrúum Hafrannsóknastofnunar eins og Hjálmari Vilhjálmssyni, okkar helsta loðnusérfræðingi, að það vanti meira fé í loðnurannsóknir og stofnunin hafi ekki getað sinnt þeim rannsóknum sem hún hefði viljað framkvæma, m.a. á hlýnun sjávar vegna loftslagsáhrifa. Það hefur ekki verið hægt. Ég heiti á bæði hv. fyrirspyrjanda og aðra stjórnarþingmenn að það verði tryggt meira fé til Hafrannsóknastofnunar einmitt til loðnurannsókna. Það skyldi þó ekki vera, virðulegi forseti, eins og hæstv. ráðherra sagði áðan, að gangan á loðnunni hafi breyst það mikið að hún sé miklu norðar en áður. Og að það gæti líka verið, virðulegi forseti, að þar sem hún sækir í kaldari sjó fylgi þorskurinn kannski á eftir. Það skyldi þó ekki vera? Þetta þurfum við að rannsaka.

Ég tek undir það, virðulegi forseti, með hæstv. sjávarútvegsráðherra að það er engin ástæða til að banna sérstaklega sumarveiðar. Ég tek líka undir að það er full ástæða til að kanna flottrollsveiðar og láta rannsaka þær og það er óskandi að Hafrannsóknastofnun geti gert það. Sumarloðna og haustloðna er verðmætasta loðnan sem bræðslufiskur og fæst mest út úr henni. Í dag eru skip að fara til leitar, ekki frá Hafrannsóknastofnun heldur skip, og vonandi finna þau hana og hefja haustveiðar vegna þess að um þessar mundir er hættulegt ástand á mörkuðum erlendis þar sem við Íslendingar getum tapað mörkuðum vegna þess að við höfum hvorki lýsi né loðnumjöl. Vonandi að það gangi.

Virðulegi forseti. Ég vil svo í lokin, eins og hv. fyrirspyrjandi, óska hæstv. sjávarútvegsráðherra velfarnaðar í starfi og vænti þess að við megum eiga gott samstarf um sjávarútvegsmál á Alþingi og að sjávarútvegsumræða komi kannski meira inn á Alþingi eins og hvað varðar hafrannsóknir og það að fylgjast með lífríki hafsins.