Afkomutrygging aldraðra og öryrkja.
Hæstv. forseti. Það er mjög gott og ég fagna því að stjórnvöld skuli vera í viðræðum við Samtök aldraðra. Það var löngu tímabært. Árið 2002 átti að setja upp — það var rétt fyrir kosningar — samráðsvettvang við aldraða þar sem reglubundið samráð við aldraða átti að vera á þessu tímabili. Er þetta ekki fyrsti eða annar fundurinn frá árinu 2002 sem er verið að halda í samráði við aldraða? Það er eins gott að eitthvað komi út úr því samráði. Það eru kosningar eftir nokkra mánuði en það er það sem þessi ríkisstjórn er þekkt fyrir, að kalla aldraða og öryrkja til sín rétt fyrir kosningar.
Ekki hefur verið efnt loforð frá árinu 2002 um sveigjanleg starfslok. Það viðurkenndi ráðherra hér í ræðustól. Það átti að hækka lífeyri þeirra sem frestuðu töku lífeyris til 72 ára aldurs um 6%. Það hefur ekki verið gert og 60 hjúkrunarrými vantar upp á að staðið hafi verið við loforðin frá og með árinu 2002. Það er því eins gott að hæstv. ríkisstjórn standi við þau loforð sem gefin voru á árinu 2002 áður en farið verður að gefa ný loforð. Ég vona að hæstv. ráðherra komi með rétta útreikninga næst þegar hann kemur í ræðustól um þessi mál.