132. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2005.

Afkomutrygging aldraðra og öryrkja.

4. mál
[11:11]
Hlusta

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins enn vera með árnaðaróskir til hv. þingmanns og óska honum góðs gengis á landsfundinum og segja að við munum hafa næg tækifæri til þess eftir landsfundinn til að bera saman orð og efndir og ég hlakka til þess.