Afkomutrygging aldraðra og öryrkja.
Frú forseti. Það er nú þannig þegar við förum í umræðu eins og nú fer fram, þá er mikilvægt að menn haldi sig við að skoða málin út frá því hvernig þau liggja í raun. Einhvern tíma var sagt: Það er enginn vandi að ljúga með tölfræði, það er einfaldasta lygin, en við eigum ekki að þurfa að vera að rífast hér um tölfræði til eða frá. Við eigum einfaldlega að ræða hver kjör þessa hóps sem við erum að tala um séu og hvernig við viljum tryggja að þau verði þannig að hann eigi að minnsta kosti fyrir brýnustu lífsnauðsynjum.
Partur af þessari þingsályktunartillögu eins og hv. þm. Guðjón Arnar Kristjánsson veit er að farið verði í að skoða hver framfærslukostnaður aldraðra og lífeyrisþega sé. Hver er þessi framfærslukostnaður? Hann hefur ekki verið skilgreindur. Og við segjum einfaldlega: Förum í þá vinnu. Skilgreinum hver lágmarksframfærslukostnaðurinn er og tryggjum síðan að enginn sé undir honum. Þetta getur varla verið að mínu viti meira „common sense“. Við erum ekkert að búa til einhverjar tölur uppi eða niðri. Förum bara í þessa athugun, einhendum okkur í hana, komumst að því hver sé lágmarksgrunnur og lágmarksþörf og tryggjum að svo sé til handa öllum sem á þurfa að halda.
Félagsmálaráðuneytið var einhvern tíma með könnun og út úr því kom að það þyrfti 140 þús. kr. fyrir einstakling til að framfleyta sér. Það er langt síðan það var og ég veit ekkert hvaða tala þetta er en bendi bara á að þúsundir aldraðra eru með tekjur í kringum 100 þús. kr. og þar undir. Ef lágmarkið er 140 þús. kr. er þá ekki verk að vinna?