Afkomutrygging aldraðra og öryrkja.
Frú forseti. Það hafa spunnist fjörlegar umræður um tillögu til þingsályktunar sem þingmenn Samfylkingarinnar leggja fram. Meginmarkmið hennar er að verja aldraða og verja þá sem lifa af bótum úr almannatryggingakerfinu fyrir þeim samfelldu árásum sem ég vil halda fram að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn hafi haft uppi síðustu árin. Það gleður mig alveg sérstaklega, frú forseti, að hér í salnum skuli þó a.m.k. vera einn úr þeirra hópi til varnar fyrir Sjálfstæðisflokkinn, hv. þm. Gunnar Örn Örlygsson.
Nú vill svo til að í dag hefst landsfundur Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt þeim upplýsingum sem hv. þingmaður lagði inn í umræðuna fyrr í dag á eitt af meginefnum flokksins að vera að bæta kjör aldraðra. En vegna þess að þetta er líklega fyrsti landsfundurinn sem hv. þingmaður situr, a.m.k. eftir að hann gerðist sjálfstæðismaður upp á nýtt, þá get ég ekki annað en leiðbeint hinum unga þingmanni örlítið og sagt honum frá því hvernig hlutirnir gerast á landsfundum Sjálfstæðisflokksins.
Því miður hefur reynslan sýnt það, frú forseti, að ákaflega lítið er að marka þær ályktanir sem þar eru lagðar fyrir. Vegna þeirrar fortíðar sem hv. þm. Gunnar Örn Örlygsson hefur í þessum málum og sökum þess að meðan hann var í liði okkar í stjórnarandstöðunni þá tók hann þráfaldlega undir með okkur með sterkum rökum um að ríkisstjórnin hefði brugðist öldruðum. Því langar mig að spyrja hv. þm. Gunnar Örn Örlygsson: Ætlar hann að halda þessum málflutningi áfram á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í dag? Ætlar hann að vera sjálfum sér samkvæmur eða ætlar hann að láta sig síga undir borðið og þegja? Ætlar hann að láta af þeirri vösku baráttu sem hann tók þátt í með okkur í stjórnarandstöðunni til að verja hlut aldraðra gagnvart núverandi ríkisstjórn?
Lengi skal manninn reyna, frú forseti. Ekki vil ég gefa mér neinar niðurstöður um það fyrir fram. Ég spái því þó að rödd hv. þingmanns muni ekki heyrast mjög hátt í umræðum um bætt kjör aldraðra. Ekki vegna þess að hv. þingmanns skorti viljann heldur vegna þess hvernig slíkir fundir eru háðir. Við sem höfum um langan aldur tekið þátt í þessari varnarbaráttu og reynt af fremsta megni að slá skjaldborg um kjör aldraðra, við vitum að á landsfundum Sjálfstæðisflokksins er tillögum af því tagi sem nú liggja fyrir á fundinum einungis veifað til skrauts. Þær eru einungis notaðar sem agn til þess að friðþægja eldri borgara og slá ryki í augu þeirra. Við höfum svo oft séð að landsfundir sjálfstæðismanna hafa samþykkt glæsilegar tillögur með það að markmiði að bæta kjör aldraðra en nokkrum dögum síðar eru fulltrúar af landsfundi Sjálfstæðisflokksins komnir aftur hingað í þessa sali og gera ekkert með það sem þeir hafa samþykkt þar. Hversu oft höfum við ekki séð svipaðar tillögur og þar liggja fyrir nú? Aldrei verður neitt úr þeim.
Ég vil þó, frú forseti, leyfa hv. þm. Gunnari Erni Örlygssyni að njóta vafans í þessu máli. Hitt hygg ég að hann verði tekinn upp í umræðum um þessi mál þegar dregur fram yfir helgi.
Það er hins vegar athyglisvert, frú forseti, að það er ekki hv. þm. Gunnar Örn sem er talsmaður Sjálfstæðisflokksins nú í umræðunni. Það er hv. þm. Pétur H. Blöndal og það er miður að hv. þingmaður skuli ekki vera í salnum nú. Talsmaður Sjálfstæðisflokksins hefur hvað eftir annað í umræðunni komið í ræðustól og haldið því fram að landssamtök aldraðra beiti óheiðarlegum málflutningi. Hann hefur ekki sagt það einu sinni og ekki tvisvar heldur þrisvar sinnum á þessum morgni.
Hann hefur sömuleiðis komið fram og sagt að upplýsingar sem er að finna í skýrslum frá Landssamtökum eldri borgara séu rangar. Það sem er langverst er að talsmaður Sjálfstæðisflokksins í þessari umræðu sem snýst um kjör aldraðra og öryrkja hefur talað eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi engan áhuga á að bæta þau kjör. Það er óhjákvæmilegt að draga þá ályktun að með því að láta talsmann sinn í umræðunni tala þannig sé Sjálfstæðisflokkurinn í reynd að gefa það sterklega til kynna að það sé ekkert að marka þá tillögu sem liggur fyrir landsfundi flokksins. Það er hins vegar ekkert skrýtið að hv. þm. Pétur H. Blöndal tali svona. Hann hefur áður farið hörðum orðum um aldraða og öryrkja í samfélaginu.
Ég rifja það upp, frú forseti, og hefði því kosið að hv. þm. Pétur H. Blöndal væri í heyrnarfæri, að það var einmitt sá þingmaður sem sagði það opinberlega að aldraðir og bótaþegar sóuðu þeim fjármunum sem þeir hefðu milli handanna í óreglu og annað. Það var talsmaður Sjálfstæðisflokksins í þessum málaflokki sem leyfði sér að tala um bótaþega eins og þeir væru hálfgerðir óreglupésar og það er viðhorfið sem liggur þarna að baki. Í ljósi þeirra ummæla ber að skoða þær samfelldu árásir hv. þm. Péturs H. Blöndals á málstaðinn sem hér er verið að verja. Í því ljósi ber líka að skoða afstöðu Sjálfstæðisflokksins sem beitir slíkum manni til þess að tala fyrir sig í umræðum af þessu tagi.
Frú forseti. Það hefur komið fram nú í umræðunni að kjör aldraðra hafa legið eftir kjörum annarra. Það hefur líka komið fram að margt af því sem hæstv. ríkisstjórn hefur lofað öldruðum og öryrkjum hefur verið svikið. Ég rifja það upp að því var sérstaklega lofað að lífeyrisþegar sem frestuðu töku lífeyris til 72 ára aldurs ættu að fá sérstakar bætur. Það var svikið. Hv. þm. Pétur Blöndal og aðrir sem tóku þátt í umræðunni, þar á meðal hæstv. heilbrigðisráðherra, lýstu því í morgun að það hefði verið gerður ákveðinn samningur við aldraða m.a. um fjölgun hjúkrunarrýma. Ég veit ekki betur en það vanti sex tugi hjúkrunarrýma miðað við dagsetninguna í dag til þess að staðið hefði verið við þann samning. Það loforð hefur því verið svikið líka, frú forseti. Og ég kalla það ekkert annað en svik þegar skattkerfinu er beitt með þeim hætti að hagur aldraðra og öryrkja rýrnar. Ríkisstjórnin sagði það alveg skýrt og ég man ekki betur en talsmaður þeirra í umræðunni, Pétur H. Blöndal, hafi tekið sérstaklega fram þegar menn réðust í skattkerfisbreytingar fyrir nokkrum árum að þær ættu ekki að leiða til þess að hagur aldraðra eða bótaþega rýrni. Hins vegar þegar skoðað er hvernig breytingar á skattkerfinu í tíð núverandi ríkisstjórnar hafi leikið það fólk, þá kemur í ljós að vegna þess að skattfrelsismörkin hækka ekki eins og eðlilegt hefði verið þá er sá hópur að borga skatta af hærri hluta af naumum tekjum, naumu ráðstöfunarfé en áður. Þetta leiðir til þess að ríkisstjórnin er í dag farin að skattleggja aldraða og öryrkja, sem áður greiddu nánast engan skatt, svo miklu nemur. Ég vísa til þess, og hv. þm. Pétur H. Blöndal getur þá komið og sagt að það sé líka vitleysa eins og hann hefur sagt um allt annað sem hefur komið frá landssamtökum öryrkja og aldraðra, að Öryrkjabandalagið hefur í tengslum við afgreiðslu skattalagafrumvarps ríkisstjórnarinnar á síðasta ári bent á að lífeyrisþegi sem hefur ekkert nema bætur almannatrygginga er farinn að greiða jafngildi tveggja mánaða útborgunar á hverju ári í skatta. Er það þetta sem við viljum að hið opinbera geri til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja? Eru þetta efndir loforðanna um að skattkerfisbreytingar ættu ekki að koma verr niður á þeim sem lifa við svona efni? Að sjálfsögðu ekki. Ég held að þeir talsmenn Sjálfstæðisflokksins sem halda því fram að það sé rangt þegar stjórnarandstaðan bendir á að loforð hafi verið svikin verði að færa betri rök fyrir máli sínu en þeir hafa gert hér í dag.
Það er óhjákvæmilegt að rifja upp, frú forseti, vegna þess að 1. flutningsmaður tillögu um afkomuöryggi aldraðra og öryrkja er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, að þegar hún fór úr ríkisstjórn greiddi þessi hópur 2% af tekjum sínum í skatta. Í dag greiðir sami hópur 13–14%. Þegar hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir fór úr ríkisstjórn fyrir miðbik síðasta áratugar þá var sterk tenging á millum almennrar launaþróunar og lífeyrisbóta og það var sú tenging sem var í senn sverð, skjöldur og hlíf aldraðra og öryrkja og það voru Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sem slitu þá hlíf í sundur sem hefur leitt til þess að kjör aldraðra og bótaþega hafa samfellt rýrnað síðan.