132. löggjafarþing — 8. fundur,  13. okt. 2005.

Afkomutrygging aldraðra og öryrkja.

4. mál
[14:28]
Hlusta

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni Helga Hjörvar fyrir ágæta ræðu. Margt ágætt kom fram í hans máli. Ég fagna því, og hér hefur það verið nefnt, að stjórnarandstaðan beri hag þessa fólks fyrir brjósti og það vel og ég held að við séum sammála um það.

Það er hins vegar nokkuð holur hljómur í þessum málflutningi þegar maður lítur til þess að þessi sama stjórnarandstaða hefur stýrt stærsta sveitarfélagi landsins hvorki meira né minna og hefur markvisst unnið að því að hækka gjöld á þetta fólk með stefnu í skipulagsmálum sem hefur leitt af sér stórhækkað fasteignaverð, stórhækkað fasteignamat og stórhækkuð fasteignagjöld. Á sama hátt hafa þeir ekki samþykkt t.d. tillögur um lækkun fasteignaskatta þessa ágæta fólks.

Ég vil því spyrja hv. þingmann Helga Hjörvar: Hvers vegna er þessi munur á málflutningnum hér og svo eftir að menn eru farnir héðan yfir Vonarstrætið í Ráðhúsið að ræða sömu mál? Hvers vegna eru menn ekki áhugasamir um það þar að bæta hag þessa fólks með því að reyna að lækka gjöld á húsnæði sem að er sannarlega algjör frumþörf fyrir alla, jafnt þetta fólk sem annað? Mér þætti vænt um, virðulegi forseti, ef hv. þingmaður mundi svara því.