Tryggur lágmarkslífeyrir.
Virðulegi forseti. Það blandast engum hugur um það sem fylgist með þjóðmálaumræðunni á Íslandi að það er að skapast mikil undiralda víða í samfélaginu og meðal eldri borgara vegna þeirra kjara sem þeir búa við. Umræðan er að verða hávær og forsvarsmenn og forustumenn eldri borgara hafa beitt sér af miklum þrótti á undanförnum missirum og vakið með mjög áhrifaríkum hætti athygli á kjörum sinna umbjóðenda, kjörum sem eru fráleitt viðunandi í svo allt of mörgum tilfellum. Nú ræðum við hér, eins og fram kemur, þingsályktunartillögur frá þingmönnum Frjálslynda flokksins um tryggan lágmarkslífeyri og höfum rætt svipuð mál á síðustu dögum. Það er því ljóst að eitt af brýnustu verkefnunum í samfélaginu núna og á næstunni er að ná einhvers konar sátt og samkomulagi um að stórbæta kjör margra lífeyrisþega og eldri borgara þannig að sómi sé að. Það er ekki sátt um stöðu þeirra eins og hún er núna og margar mjög sláandi staðreyndir hafa verið dregnar fram sem eru sterkar röksemdir fyrir því að ráðast verði í verulegar umbætur á kjörum þessa fólks. Á sama tíma og rætt er um skattamál og skattalækkanir, skattalækkanir ríkisstjórnarinnar á hátekjuhópana upp á milljarða króna ár eftir ár, er dragnast áfram við að bæta kjör lífeyrisþega og eldri borgara svo nemur örfáum milljörðum. Menn hljóta að spyrja um forgangsröðunina í þessum málum. Hagsmunir eldri borgara eru alla vega ekki forgangsmál eins og ríkisstjórnin hefur gengið fram á síðustu missirum og margar tölur styðja þau orð með mjög sláandi og róttækum hætti þannig að engum blandast hugur um. Síðustu tíu árin eru sérstaklega höfð sem viðmið um hvernig komið er fyrir lífeyrisþegum og eldri borgurum nú og þá.
Á fundi Félags eldri borgara í Reykjavík í febrúar á þessu ári, 2005, var þess krafist að grunnlífeyrir aldraðra frá almannatryggingunum næði aftur sama hlutfalli af viðmiðunarlaunum og árið 1995, fyrir tíu árum. Þá kom fram að á þessu tíu ára tímabili hefði kaupmáttur lágmarkslauna aukist um 56% en kaupmáttur lífeyris aðeins um 25%. Hjá Landssambandi eldri borgara kom fram að samkvæmt áformum ríkisstjórnarinnar frá síðasta þingi um lækkun skatta muni kaupmáttur ráðstöfunartekna eldri borgara aðeins hækka um 9,3% frá árinu 1995 til loka kjörtímabilsins 2007 en ekki um 55% eins og fulltrúar ríkisstjórnarinnar hafa haldið fram.
Í því sambandi má benda á að stór hluti ellilífeyrisþega, um þriðjungur þeirra, er með undir 110 þús. kr. á mánuði. Einnig var bent á að í skýrslu um kjör öryrkja, sem Samfylkingin óskaði eftir frá forsætisráðherra og var lögð fyrir 126. löggjafarþing, kemur fram að 43% allra öryrkja fá engar greiðslur úr lífeyrissjóði. Þá má benda á að 22% ellilífeyrisþega eða um sex þúsund manns voru með ráðstöfunartekjur upp á um 70 þús. kr. á mánuði sér til framfærslu árið 1999.
Þetta eru mjög alvarlegar og sláandi staðreyndir og renna styrkum stoðum undir það að grípa þurfi til aðgerða í þessum málum eins og lagt er til í þeirri þingsályktunartillögu sem við ræðum hér frá hv. þm. Guðjóni A. Kristjánssyni og fleiri þingmönnum frjálslyndra og í tillögu til þingsályktunar um afkomutryggingu aldraðra og öryrkja frá Jóhönnu Sigurðardóttur og öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar. Það þarf að grípa til aðgerða til að bæta stórlega hag þeirra lífeyrisþega og eldri borgara sem búa við hvað kröppust kjör, kjör sem eru langt undir því sem viðunandi telst. Samkvæmt þessu greiða ellilífeyrisþegar nú um 14% af tekjum sínum í skatta en greiddu 2–3% af samsvarandi tekjum í skatt fyrir tíu árum. Á sama tíma og verið er að lækka stórkostlega skatta á fyrirtæki, á sama tíma og verið er að lækka álögur á þá sem hafa góð laun um fleiri, fleiri milljarða er verið að skattleggja þessar lágu og allt of lágu tekjur. Það kom einmitt fram í frétt á Stöð 2 fyrir tveimur dögum að innan OECD eru skattar á fyrirtæki hvað lægstir hér en við hirðum hvað mest af almenningi og langmest í veltuskatta hvers konar og eins er tekjuskatturinn tiltölulega hár.
Þá er ekki hægt annað en að minnast á mjög athyglisverða könnun eða niðurstöðu sem kom fram í fréttum um daginn um samkeppnishæfi landa heimsins. Þar var sýnt fram á það að þau lönd sem stóðu sig langbest eiginlega í öllu tilliti voru Norðurlöndin önnur en Ísland og trónaði Svíþjóð á toppnum. Í því ljósi er mjög athyglisvert að skoða útgjöld eða fjárfestingar þessara landa til velferðarmála hvers konar, því að það er nær að líta á framlög til velferðarmála sem fjárfestingu að stórum hluta. Slík fjárfesting skilar sér líka með einum eða öðrum hætti til baka, m.a. í miklu heilbrigðara og betra samfélagi eins og er um að ræða annars staðar á Norðurlöndunum. En velferðarkerfið á Íslandi er miklu veikara en þar og útgjöld ríkissjóðs miklu lægri en annars staðar gerist. Opinber útgjöld til elli- og örorkulífeyrisþega eru t.d. miklu lægri hér á landi en í flestum OECD-löndunum. Í samantekt norrænu hagskýrslunefndarinnar á sviði félagsmála frá október 2004 um útgjöld til félags- og heilbrigðismála á Íslandi og annars staðar á Norðurlöndunum árið 2002 kemur fram að útgjöld til félags- og heilbrigðismála aldraðra og öryrkja sem hlutfall af landsframleiðslu eru lægst á Íslandi. Á Íslandi er hlutfallið 9,8% af landsframleiðslu en allt upp í 16,7% af landsframleiðslu í Svíþjóð, í Danmörku tæp 13%, sama í Finnlandi og Noregi.
Margt annað í umhverfi eldri borgara þarf að sjálfsögðu að skoða um leið og rætt er um afkomu þeirra, afkomutryggingar og tryggan lágmarkslífeyri, og má þar m.a. nefna dvalar- og hjúkrunarheimilin. Fram kom í svari hæstv. heilbrigðisráðherra til mín fyrir nokkrum mánuðum að um eitt þúsund eldri borgarar þurfa að deila herbergi á dvalar- og hjúkrunarheimilum án þess að um sé að ræða maka eða sambýling. Ég held að allir geti tekið undir að þetta er ófremdarástand sem þarf að taka inn í umræðuna um fjárfestingar í kjörum og umhverfi lífeyrisþega og eldri borgara. Ástæða er til að fagna þeirri miklu pólitísku umræðu sem nú á sér stað á Íslandi um kjör þessara hópa.