132. löggjafarþing — 9. fundur,  17. okt. 2005.

Tryggur lágmarkslífeyrir.

6. mál
[18:04]
Hlusta

Einar Oddur Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í umræðu um fjárlögin kom þetta atriði dálítið til umræðu. Ég tjáði mig um það. Ég skal að gera það aftur. Ég er ekki tilbúinn til að taka afstöðu á neinn hátt til þeirra tillagna um breytingar á bótum sem þar komu fram. Það er eitthvað sem menn verða að ræða sín á milli og ég var ekki tilbúinn að tjá mig um það og ég áskil mér rétt til þess seinna.

Hins vegar gerði ég athugasemd við það í fjárlagaumræðunni að einstök ráðuneyti geta ekki smeygt sér fram hjá kröfunni um hagræðingu í rekstri með því að taka slíkt út af einstökum bótaflokkum. Ég sagði í umræðunni að það væri óhæfilegt. Við gætum ekki liðið það. Við (KHG: Það er tillaga ríkisstjórnarinnar.) værum að samþykkja fjárlög sem byggðust á rammafjárlögum þar sem ráðherrarnir allir í heild sinni hafi gengið undir það jarðarmen sem rammarnir væru. Þeir hafa allir í heild sinni samþykkt þær hagræðingarkröfur í rekstri sem settar voru upp í upphafi. Þeir gætu ekki, alveg sama hver þeirra væri, hlaupist undan hagræðingarkröfunni. (Gripið fram í: Ekki utanríkisráðuneytið.) Þeir gætu það ekki. (Forseti hringir.) Skiptir ekki máli hvaða ráðuneyti það er. Ég hef látið það í ljós, bæði í þinginu svo og í störfum í fjárlaganefnd.