132. löggjafarþing — 10. fundur,  18. okt. 2005.

Skattalækkunaráform ríkisstjórnarinnar.

[13:41]
Hlusta

forsætisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (F):

Frú forseti. Ég tel að hv. þingmaður sé að oftúlka mjög það álit sem þarna liggur fyrir. Það liggur alveg ljóst fyrir að í skýrslunni nefna þeir hvort rétt væri að fresta skattalækkunum. Að öðru leyti tala þeir afskaplega jákvætt um ástandið á Íslandi, mjög jákvætt. Ég tek eftir því að það er mjög erfitt fyrir hv. þingmann að lesa þetta og honum líður greinilega hálfilla yfir því að menn skuli líta svona jákvætt á ástandið hér á landi. Eigum við ekki að gleðjast yfir því?

Síðan geta menn haft mismunandi skoðanir á því hvenær skattalækkanir eru rétt tímasettar. Ég býst við því að skattalækkanir séu aldrei rétt tímasettar hjá hv. þingmanni. Ég á ekki von á því að hann vilji … (SJS: … grein fyrir því …) Ég reikna með því að hann vilji engar skattalækkanir, hann vill hækka skatta og hjá slíku fólki eru náttúrlega skattalækkanir alltaf vitlaust tímasettar.

Aðalatriðið er það, hv. þingmaður, að efnahagsástandið er hér mjög gott. Hér eru miklar framfarir, meiri en í flestum öðrum löndum og það er aðalatriðið. Þess vegna höfum við efni á því að fara út í skattalækkanir og ég tel að við eigum að gleðjast yfir því vegna þess að það kemur til með að auka kaupmátt verulega. Það er alveg ljóst að við þær aðstæður sem núna eru í þjóðfélaginu í sambandi við umræður um kjarasamninga væri það að sjálfsögðu það vitlausasta sem menn gerðu af öllu að hætta við fyrirhugaðar skattalækkanir.