132. löggjafarþing — 11. fundur,  19. okt. 2005.

Reykjavíkurflugvöllur.

[15:51]
Hlusta

Ásta R. Jóhannesdóttir (Sf):

Herra forseti. Deilurnar um framtíð Reykjavíkurflugvallar ganga þvert á flokkslínur. Samkvæmt síðustu skoðanakönnun vill aðeins fjórðungur landsmanna að miðstöð innanlandsflugs verði flutt frá Reykjavík. Á landsbyggðinni var andstaðan mest við flutninginn og á höfuðborgarsvæðinu var einnig meiri hluti á móti.

Flugsamgöngur eru fljótvirkasti ferðamátinn og því mjög mikilvægar nú þegar tíminn er peningar og það þarf að vera stutt á áfangastað frá flugvelli. Er líklegt að milljörðum verði varið til byggingar nýs flugvallar, innanlandsflugvallar við Reykjavík, á sama tíma og nýuppgerður innanlandsflugvöllur er þar fyrir? Það finnst mér afar ólíklegt. Hverfi Reykjavíkurflugvöllur mun innanlandsflugið að öllum líkindum flytjast til Keflavíkur. Það gæti leitt til þess að mikið af innanlandsfluginu legðist af vegna þess hve tímafrekt það yrði fyrir farþega að fara á milli höfuðborgarinnar og Keflavíkur.

Áður en ákvörðun um að Reykjavíkurflugvöllur verði fjarlægður úr Vatnsmýrinni verður tekin þurfum við að ákveða hvers konar samgöngur við viljum. Það þýðir ekki að hrópa „flugvöllinn burt“ án þess að hugsa um samgöngumálin í heild. Er þjóðvegakerfi okkar tilbúið að taka við allri þeirri umferð sem færi út á vegina ef innanlandsflugið legðist af? Það tel ég svo sannarlega ekki. Vegirnir eru að hrynja á stórum köflum vegna hins mikla álags sem vöruflutningar um þá hafa skapað eftir að strandsiglingar lögðust af. Það væri ógnun við umferðaröryggi að stuðla að slíku ástandi.

Ég minni líka á sjúkraflugið og þjónustu Landspítalans við alla landsmenn. Við verðum að horfa á málið heildstætt og af skynsemi og á meðan það tekur jafnlangan tíma og nú að fara milli Reykjavíkur og Keflavíkur og þjóðvegirnir eru eins og þeir eru er það ábyrgðarleysi að tala um Reykjavíkurflugvöll burt. Höfuðborgin hefur skyldur við landsmenn alla og þeir eiga rétt á greiðum samgöngum vegna þeirrar þjónustu sem þeir þurfa að sækja hingað. Það verður að skoða samgöngumálin heildstætt (Forseti hringir.) áður en ákvörðun er tekin í þessu máli.