Reykjavíkurflugvöllur.
Herra forseti. Enn á ný er rætt um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Frambjóðendur fyrir borgarstjórnarkosningar hafa opnað þessa umræðu þrátt fyrir niðurstöður í atkvæðagreiðslu sem fram fór árið 2001.
Hér er um mjög verðmætt land að ræða og getur flutningur flugvallarins gerbreytt skipulagsmálum í hjarta borgarinnar eins og komið hefur fram en þá hljóta að vakna spurningar hvar innanlandsflugið eigi að vera. Hvað með sjúkraflugið, hvað með öryggisþættina? Hér er um að ræða mál sem snertir annars vegar borgarbúa þar sem gríðarlega deildar meiningar eru um málið og hins vegar landsbyggðarfólk sem nýtir sér innanlandsflugið og afstaða þess fólks er mjög skýr í þessum efnum. Í nútímanum skiptir gríðarlega miklu máli að komast hratt á milli staða og það verður að taka tillit til þess í þessum vangaveltum því að hér er einungis um vangaveltur að ræða.
Talið er að það kosti um 8–12 milljarða að byggja nýjan flugvöll. Það er líka talað um að það kosti um 1,7 milljarða á ári að reka slíkan flugvöll. Þá spyr ég: Treystum við okkur til að borga þann munað að byggja nýjan flugvöll? Eigum við hugsanlega að nýta flugvöllinn í Keflavík, enda stefnir allt í að Íslendingar taki við rekstri vallarins? Hér er líka um atvinnuspursmál að ræða. Fari svo, og þá horfi ég til framtíðar, að innanlandsflugið flytji til Keflavíkur, sem er gríðarlega mikil andstaða við úti á landsbyggðinni, verður að tryggja hraðbraut á milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Það verður jafnvel að tryggja að það verði einteinungur sem fer með ógnarhraða á milli þessara staða. Þetta kostar allt mikla peninga. Við verðum að taka tillit til fólksins í landinu því að öryggisþættirnir skipta miklu máli í þessum efnum.