132. löggjafarþing — 14. fundur,  3. nóv. 2005.

Upplýsingaréttur um umhverfismál.

221. mál
[11:58]
Hlusta

umhverfisráðherra (Sigríður A. Þórðardóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil sjá niðurstöður nefndarinnar áður en ég tek beina afstöðu til þessa máls. Ég vil sjá hvaða flækjur eru þar á ferðinni áður en ég tek efnislega afstöðu til málsins.