Upplýsingaréttur um umhverfismál.
Forseti. Hér kemur nýtt upp á teninginn því flækjurnar sem um er að ræða eru ljósar. Réttarfarsnefnd hefur sagt okkur frá því hvaða flækjur það eru í stórum dráttum. Þetta er spurning um tæknilegar flækjur fyrst og fremst, hverju það mundi breyta í lögunum og hvort þurfi að breyta stjórnarskrá eins og í Svíþjóð, ég get ekki ímyndað mér það. En ég er ekki fræðimaður á því sviði. Hingað til hafa menn eins og Halldór Ásgrímsson, núverandi hæstv. forsætisráðherra, verið að tala um tæknilega hluti. Spurning mín var pólitísk. Er hæstv. umhverfisráðherra, sem hlýtur að þekkja Árósasamninginn, annars væri hún ekki ráðherra í þessu ráðuneyti, tilbúin að fallast á meginreglur hans með því að fullgilda hann og leiða í lög þau ákvæði sem hér þarf í lög að leiða vegna þátttöku okkar í honum? Eða ætlar hæstv. umhverfisráðherra, með ríkisstjórninni, að bíða eftir því hvað Evrópusambandið gerir og hvað er hægt að þvælast fyrir Evrópusambandsviljanum í EES-samstarfinu? Og hvernig er hægt að koma þessu þá þannig við að íslensk stjórnvöld, þessi frægu hægri stjórnvöld, þurfi sem minnst að skipta sér af þessu? Þess vegna vil ég endurtaka þetta. Ég veit að um getur verið að ræða tæknileg vandræði, við skulum mæta þeim. Er hæstv. umhverfisráðherra pólitískt samferða Árósasamningnum? Er hún samþykk honum eða ekki?